Ciao ísland !
Um daginn, 6. janúar til þess að vera nákvæm, fór ég til Torino. Við, Helena (Finnland) og Vivi (Írland) ákváðum þetta í skyndi kvöldið áður og planið var að hittast á lestarstöðinni klukkan 8 um morguninn næsta dag. Sama kvöld hringir Helena og segir að hun sé svo þreitt að hun geti ekki komið fyrr en klukkan 9. Ég hringdi í Vivi og allt í góðu með það. Svo hringir Helena aftur 2 tímum seinna og segir að host-mamma hennar segir að það sé of seint og að hún ætli að skutla henni þangað klukkan hálf 7. Ég sagði að við gætum verið komnar þangað klukkan hálf 8, að hún þurfti ekki að bíða í nema hálftíma. Ég vaknaði svo mjög snemma en sofnaði auðvitað aftur. Við Vivien mættum klukkan 8 og ég með samviskubitið alveg á toppnum, greyið Helena. Hringdi svo í hana u.þ.b 7 sinnum og í 8-unda svaraði hún. Hún var heima..... !!! Ég varð alveg brjáluð og bað hana að drífa sig eins og hún gæti. Helena mætti klukkan hálf 12 hress og brosandi, ég búin að líma rassinn á mér við stólinn sem ég hafði setið á síðustu 3 tímana. Hún er yndisleg.
AAllavegana, við keyptum miða í næstu lest og héldum svo af stað. Lestarferðin tók um 2 tíma og þar planaði ég allan daginn, þar sem að við höfðum ekki jafn mikinn tíma og við ætluðumst fyrir. Ég tók upp kortið og fékk lánaðann penna hjá Ástralska stráknum sem sat við hliðina á mér. Ákváðum fyrst allt sem við vildum skoða og svo heppilega var að þetta var allt, næstum, á sama stað. Krassaði og krassaði einsog ég gat og þá var komið plan fyrir daginn!
| Hressar í lestinni |
| "Í dag er þinn stóri dagur?" já held það ! |
Um 2 leitið vorum við komnar til Torino. Það var haldið beint af stað, gengum í gegnum garðinn (1) og svo framhjá "Fondazione palazzo bricherasio" sem var eitthvað frægt hús, man ekki alveg hvað var á bakvið það en það var áhugavert.
Ætluðum svo á Egypska minjasafið , sem ég var alveg grííðarlega spennt fyrir. Auðvitað, var það lokað.
Næsta stopp var "Piazza Carignano"
| Haha hun var að reyna að taka í hendina á kallinum !! |
Svo var "Piazza Carlo Albergo"
| Skautaa |
Það var alveg brjáluð sól og rosa hlýtt, ég held að við höfum allar komið í of hlýjum fötum.
Við fórum svo og fengum okkur hádegismat. Fengum okkur allar bretti með osti og Helena fékk líka með "Salame" kjöt eitthvað. 5 tgundir af yndislegum osti og svo hunang í miðjunni, nammmm. Rosalega gott, ég var svo full og sátt.
Eftir matinn löbbuðum við framhjá "Palazzo Madama"
Svo fórum við á "Piazzetta Reale" og það var alveg brjálað mikið af fallegum byggingum þar.
San Lorenso, rosalega falleg kirkja.
Svo var haldið í "Palazzo Reale" konungshöllina, auðvitað. Fórum inn og keyptum miða til þess að skoða aðeins 1 hæð sem var bara listasafn úr konungshöllinni. Við vissum ekkert hvert við áttum að fara og enduðum á því að smigla okkur inní hópinn sem borgaði 3-falt meira en við og við fórum upp og skoðuðum konunghöllina sjálfa. Maðurinn útskýrði hvert einasta handverk, allt á ítölsku auðvitað og ég segi nú stolt að ég skildi meiri hlutann af því ! Mátti ekki taka neinar myndir þarna inni, sem ég varð nú frekar svekkt yfir en skil nú fullkomnlega. Höllin var konungsleg ! Gríðarlega fallegt og hvert smáatriði var fullkomið. Öll herbergin risastór og full af málverkum og speglum og gylltum fallegum húsgögnum. Herbergin höfðu öll mislíkt þema og jarðlitirnir notaðir að mestu. Ég hrífðist mest af "Te herberginu", svona sérstaklega til að drekka Te, það var annað fyrir kaffið ! Allavega þá var það bara yndislegt, svona dökk sjóblátt og gyllt, ég hélt um tíma að augun á mér væru að þorna upp en ég tímdi samt ekki að blikka. Yndislegt alveg. BELLISSIMO !
| Þessar myndir eru bara inngangurinn ! |
Eftir höllina fallegu fórum við á "Armeria Reale" og það er s.s safn með tólunum úr stríðum hér áður fyrr.
Ég var líka alveg rosaleg spennt fyrir því, maður heldur alltaf að þetta sé bara eitthvað úr myndum.
| Uppstoppað !!! |
| Kallinn þarna í miðjunni sagði mér bókstaflega svona 7 sinnum að það væri bannað að taka myndir :s ! |
Við náðum ekki að skoða allt sem ég krassaði á kortið en við misstum bara af 2 stöðum þannig það sleppur, vorum (ég var) frekar bjartsýn á þetta allt saman. Við fórum á lestarstöðina klukkan hálf 8 og fengum okkur þar Pizzu í kvöldmat.
Lestin lagði svo af stað klukkan átta og ég var komin heim klukkan 11. Þetta var alveg yndislegur dagur og ég skemmti mér konunglega. Það var nóg af hlátri og gríni.
Næsta kemur fljótt ! -bjarney