Tuesday, March 6, 2012

Sono una cogliona.. lo so !

Aaaaaaaokey ! 
Ég vil enn og aftur biðjast afsökunar á lélegri frammistöðu minni í þessu blessaða bloggi mínu. 

Ég ætla að byrja á byrjun, en þar sem að hún er fyrir tveimur mánuðum mun ég bara skrifa um þær stundir sem ég tók myndir af. Ég man ekki meir..

Janúar var góður mánuður, mjög góður. Skólinn byrjaði sjötta minnir mig og það var bara fínt. Ég nenni engu endaluasu fríi, það vita það allir sem mig þekkja. Í fyrstu vikunni ákvað ég að sýna öllum hvað ítalskan mín var orðin frábær, stolt upp fyrir haus, og afleiðingarnar voru þær að allir kennarnarnir mínir, bókstaflega, voru þvílíkt ánægðir og ákváðu það að ég gæti nú gert kynningar á ítölsku um ísland. Ég kom mér í algjöra klípu en svaraði nú játandi við hvern og einn. Ég gerði kynningu um skólakerfið á íslandi.. aðalega samt bara um MA þar sem hann er nú bara yndislegur, komst að því eftir að hafa gengið í skóla hér í u.þ.b 2 mánuði.. !
Kynningu um líffræði á íslandi, það gékk auðvitað bara hræðinlega! Hafði ekki hugmynd um hvað ég var að tala, líka bara bull að byðja um það, ég skildi ekki baun hvað ég átti að gera. 
Um sögu íslands, mér fannst það reyndar bara frekar áhugavert og gaman, einnig gerði ég um landnám íslands sem ég var nú búin að læra um fyrir en fannst samt sem áður áhugavert. Svo síðast en ekki síst var bara kynning um ísland, það sem mér fannst áhugaverðast og fallegast um landið og menninguna. Mér fannst sú kynning alveg yndisleg en það var samt smá sárt líka, þó að ég elski að búa á Ítalíu! 
Ég hékk á uppáhalds kaffihúsinu mínu allann mánuðinn lærandi. Mér fannst það yndislegt og ég saknaði þess eiginlega bara. 
Ég gerði eflaust marga skemmtilega hluti en ég bara einfaldlega man það ekki og því miður er ég ekki með neinar myndir að neinu þannig. 

Mánuðurinn endaði samt bara á toppinum. Þann þrítugasta var "corso di saluto " og við öll fengum að hitta nýju 6 mánuða skyptinemana. Það var spjallað og hlegið og borðað og rosa fjör. 



Allir saman, það komu þó ekki allir. 


Eftir það fórum ég og Helena á tónleika með The Black Keys og það var bara yndislegt kvöld. Það var uppselt og alveg trooð fullt af fólki. Lögin öll yndisleg og þeir voru alveg ógeðslega flottir! 
Ég naut mín eins vel og ég hefði getað! Það var dásamlegt. 


Ánægðar







Í byrjun febrúar, 1. febrúar, til þess að vera nákvæm byrjaði að snjóa. LOKSINS! Ég var með frosið bros allann daginn, að hálfum hluta afþví það var svo kalt og að hinum yfir hamingju. Ég tók meira að sega sérstaka gleðigöngu í snjónum!! held að ég hafi aldrei verið jafn glöð ykir að sjá snjó, þó svo að ég sé alltaf yfir mig hamingjusöm þegar byrjar að snjóa heima.
Ég fann sjálfa mig samt vera að syngja jólalög í strætó daginn eftir... .. 

Svo þann 12 febrúar hittust allir heima hjá einum sjálfboðaliðanum fyrir smá sleepover.. frekar skrítið en það var áhugavert.. og reyndar bara svolítið mikið gaman. Við fórum í "bónus" og keyptum fullt af mat og svona, ég og helena gerðum svo bestu borgara sem ég hef nokkurn tíman gert, alltof góðir! Við borðuðum og töluðum og hlógum og spiluðum og svona rosa gaman. Svo vara bara farið snemma í háttinn!
Á metróstöðinni á leið í sleepover! 

Súpermarkaður..sætastar

Lizzy prófaði svo átfittið fyrir morgundaginn! 

Ástæðan var sú að snemma morguninn eftir fórum við öll saman uppí strætó, niður í metró og inní lest. 
Geðveikt myglaðar að býða eftir strætó klukkan
5:30 um morguninn ! 



Glaðar en þreyttar í Lestinni
Enduðum á Lecco það sem við hittum Guðrúnu Elín og aðra skiptinema sem þar voru. Fórum við svo öll saman í strætó og enduðum uppí fjalli. Það var yndislegt. Ég var búin að vera spennt alltof lengi. Ég fékk að fara á snjóbretti! 

Við vorum komin uppí lyftu um 9 leitið minnir mig og það var alltof mikið af fólki, alveg rosalega mikið. 
Þar sem ég hef aldrei farið í annað fjall en hlíðarfjall og var ég gríðarlega spennt og ánægð. Það byrjaði á svona einni lokaðri lyftu eins og í myndunum, og hún fór bara beint upp svona 80°.. ég var alveg að kúka á mig úr hræðslu og það var gert nóg grín af mér. Þegar við komum upp þá var bara risa, risa, risa skíðasvæði. Það var klætt sig og leigt og borgað og borðað smá og svo var haldið í hann. Ég, miriam, helena, alex and lizzy hittum nýtt afs fólk og eyddum deginum með þeim. Fórum alveg fullt að ferðum og það voru allir rosalega hissa á því hvað ég var góð.. mont. Hittum nýjann skyptinema frá cali og hann var mjög góður og mér fannst geggjað að fá einhvern til þess að reyna að stökkva með mér og gera eitthvað svona gaman. Ég skemmti mér alveg konunglega. Mér fannst yndislegt að hafa fengið að komast á bretti, loksins. 









Við tókum svo strætó um 5 leitið og fórum á kaffihús í Lecoo. Ég fékk mér heitt súkkulaði, og það var bókstaflega heitt, bráðið súkkulaði. Það var yndislegt og svo hlýtt og þykkt og gott.. mmmhm !



 Ég var komin heim um níu leitið, henti ofaní mig mat, tók 5 sekúndna sturtu og svo beint í háttinn! 


Þann fjórtanda var svo San Valentino, ég fékk tvær valentínur, Miri og Hele, keypti rósir handa þeim og allt! Ætluðum svo á mest kósý veitingastaðinn en tókum svo vitlausann sporvagn... enduðum einhverstaðar.. fundum þar kebab hús og ákváðum að borða bara þar. Það var samt besti kebab sem ég hef nokkurn tímann borðað og við sáum ekki beun eftir að hafa tekið vitlausann vagn! Kvöldið var rosalega gott og kósý. Vorum allar þrjár í rosa góðum fíling og ég held að þetta hafi bara einfaldlega verið besta kvöldið okkar saman ! 



Búnar að borða og alltof fullar !(af mat)
 Vikuna 13-17 febrúar var svo kalla "Stage" í skólanum. Það var s.s. vika sem ég fór ekki í skólann heldur að vinna á leikskóla í staðinn. Ég var á blá sviðinu, sem eru börn frá 3ja til 5 ára og þau voru yndisleg. Ítölsk börn bara alltof falleg, langað að taka þau öll með mér heim. Vikan var rosalega fljót að líða en samt var það alveg rosalega erfitt, krakkarnir voru rosalega spenntir yfir að sjá nýtt andlit sem vildi leika við þau og það var tosað mann framm og til baka, upp og niður, út og suður og allt! Eftir hvern dag þá fór ég heim og tók mér blund! Stórt kredit á elsku móður mína, hér með. 

Höfuð, herðar, hné og tær ! 

Krúttlegasta sem ég hef séð! 
Þann 18. febrúar var síðasta laugardagskvöld helenu. Úr því fórum við út að skemmta okkur og það var rosa fjör. Byrjuðum á Carnival partýi með bekkjarfélögum Miriams og það var bara rosalega gaman, tók engar myndir, en ég er bara manneskjan sem vil njóta mómentins.. ekki vera að taka myndir af því. Fórum svo á bar og á diskó og svona rosa gaman. Það var fjör! 
Klósett mynd

Ógeðslega fyndnar, ákváðu að kaupa breezer
til þess að fá að pissa 

Hressar í strætó

Sæt
21. febrúar kom svo mamma hennar Helenu, til þess að fara með henni heim og 22 hittumst við öll um hádegisbilið til þess að borða síðasta hádegisverðinn hennar helenu öll saman. Við keyptum fána handa henni og skrifuðum öll á hann krúttleg skilaboð.
Ísveður í Milan! 





Fallegar mægður


Fáninn fallegi
 Um 5 leitið fóru svo þeir sem gátu upp á Duomo, þar sem að enginn hafði verið svo gáfaður að fara þar upp áður, það var bara gullfallegt, undursamlegt hreinlega! Eftir það fórum við á "Happy hour" með fjölskyldunni hennar. Það var rosa kósý en samt rosalega leitt líka. Síðasta máltíðin. 



Tróðum okkur öll í fótóbooth ! 



ég er ekki alveg svoona feit.. haha ekki ennþá ! 


Þann 23. vöknuðum ég og miriam svo klukkann 6 um morguninn til þess að fara á lestarstöðina og sega bæ við helenu. Hún var sein... að vana, og við höfðum svona 3 sekúndur til þess að kveðjast. En þessar 3 mínútur voru nú samt bara rosalega ömurlegar. Eftir það ákváðum við Miriam að í stað þess að sitja og væla að gera eitthvað skemmtinlegt ! Við fórum útum allt í Milan og á kaffihús og í búðir og á markaði og svona rosa gaman, keyptum okkur grímur og fórum svo á Carnival ball í skólanum mínum. Systkini mín voru þarna og bróðir minn (einn af þeim haha) var að rappa og það var alveg rosalega mikið af fólki og allir í búningum og svona gaman. Góður endir á deginum miðað við hvað byrjunin var ömurleg. 
Ömurleg mynd en samt sú eina sem ég fann!
Ég, Miri og sergio lilli bró. svo tvær sem ég hef ekki hugmynd
hvað heita !