Friday, June 8, 2012

Carnivale e il mio compleanno

Ég veit ekki einu sinni hvort ég eigi að þora að byðjast afsökunar í þetta sinn..

Allavegana.. hér kemur það !

Helgina 24.-26. Febrúar fór ég til Viareggio, sem er smábær við ströndina suðaustan við Milanó.
Systur mínar, Fiore og Marianna voru í vinnuferð og ég fékk eiginlega bara svona að fljóta með.
Svo voru 2 strákar, Dennis og Emanuele, og svo 10 fatlaðir einstaklingar, voru öll yndisleg alveg
hreint. Um tvö leitið á föstudeginum var lagt af stað og við vorum komin í bæinn um hálf sjö.
Það var hent öllu inn og svo var farið beint í eldamennskuna. Ég og Fiore fórum svo með 
helminginn af hópnum á ströndina og tókum góðan og kósý göngutúr þar. Fórum svo á útsýnispall 
sem var s.s. alveg frá ströndinni og endaði langt útá sjó. Það voru allir í alveg rosalega 
skemmtilegu skapi og útsýnið var ólýsanlegt, rosalega fallegt. 
Hópurinn



Þetta er s.s. bryggjan sem leiðir útá sjó..

Hann vildi alltaf að ég tæki mynd af honum,
algjört módel. 
Enduðum uppí bústað eitthvað að verða 10, borðuðum stóran og góðan kvöldverð og svo var 
farið í háttin um 1 . Á laugardagsmorguninn var vaknað snemma, fórum í göngutúr í gamlann bæ og sáum mjög athyglisverða kirkju.... 





Inní kirkjunni

Hitler.....?


oog svo gerðu allir sig til fyrir Carnivalið, sem var s.s. aðal ástæðan fyrir þessu ferðalagi. 







Svo fórum við niður í bæ og það var alveg gríðarlega mikið af fólki. Carnival er einfaldlega bara hátíð á ítalíu, ekki á sama tíma allstaðar þó, þar sem fólk klæðir sig upp eins og þau vilja og fer svo að skemmta sér. Svolítið einsog öskudagurinn á Íslandi nema bara fyrir alla. Carnival í Viareggio er þó mjög óvenjulegt og öðruvísi vegna þess að það er keyrt hringinn í gegnum bæin á vögnum sem voru alveg roosalega stórir og troðfullir af fólki sem söng og dansaði og kastaði nammi útum allt. Eftir hvert Carnival er byrjað á nýjum vagni og tekur því sirka ár að gera einn vagn. Allir bæjarfelagar taka þátt og þetta var alveg rosalega gaman og áhugavert og ég skemmti mér gífurlega.

Allir saman

Keyptum okkur hárkollur.








Sýningin gékk yfir í u.þ.b 2 tíma og það voru svona 2 mín á milli vagna, voru alveg rosalega margir og allir svo mismundandi.

Á sunnudagsmorgnu var svo bara lagt í hann snemma og við vorum komið heim um 2 leitið, ég og Fiore fórum beint í rúmmið :)

Mánuðurinn á eftir var bara ekkert merkilegur, ég gerði bara það vanalega held ég, ekkert efni í  bloggfærslu.


Þann 29. mars var afmælið mitt, eins og þeir sem lesa þetta ættu að vita.
Dagurinn byrjaði bara mjög venjulega fór í skólann og svona. Fékk alveg roosalega mikið af kveðjum í
skólanum og það var fólk að óskar mér til hamingju sem ég vissi ekki einu sinni að ég þekkti. Mér þótti
alveg rosalega vænt um það og var skælbrosandi allann daginn. Daginn eftir kom ensku kennarinn minn mér svo á óvart og hafði bakað 3 kökur fyrir mig. Svo voru báðir mínir bekkir boðnir í veislu á miðjum skóladegi, alveg yndisleg.
Allavegana, fór heim snemma úr skólanum á afmælisdaginn og hitti svo krakkana í Milano. Fórum bara á kaffihús og svona kósý. Kom heim um sjö leitið og það ver bara skipað mér uppí rúm og bannað mér að hjálpa til. Þau spurðu mig nokkrum dökum fyrr hvað mig lanagði til þess að borða á afmælisdeginum, ég svaraði hiklaust að mig langaði í júsí steik, heita sósu, grillaðar kartöflur og salat. Og að ég vildi borða það allt í einu, s.s. á einum disk svona til tilbreitingar (hér er borðar eitt í einu, þurr kjúklingabrynga, svo salatið, svo kartafla.. o.s.fr.).
Um átta leitið heyrði ég kallað A TAVOLA (tilbúið), ég henti mér niður í skoti. Maturinn var ekki aalveg eins og ég bjóst við, hann var alveg rosalega góður og ég var rosalega þakklát afþví þau reyndu, en kjötið var á grillspjótum og sósan var majones... kartöflurnar voru franskar en salatið var fullkomið! Mér fannst það samt sem áður gott og það var allavega eitthvað nýtt.. eitthvað annað en pasta. Það var svo sungið fyrir mig og ég fékk 18 kerti og allt. Á eftir komu svo gjafirnar, mamma og pabbi gáfu mér kort í ræktina (skilaboð? haha), Virginia og Miriam gáfu mér alveg handafylli af eyrnalokkum og armband og restin gaf mér rosalega litla og sæta gull hauskúpueyrnalokka og hálsmen/armband í stíl og svo gaf amma mér 10 evrur.







elska þau svo mikið

Afmælisdagurinn var alveg rosalega yndislegur og ég hefði ekki viljað neitt öðruvísi.

Sunnudaginn 1.apríl hélt ég svo uppá afmælið mitt með þeim nánustu. Við byrjuðum kvöldið á því að fara á Happy Hour, sem er 1 drykkur og svo hlaðborð þar sem maður borðar bara eins mikið og þú villt. Við vorum 16 þar og það var alveg yndislegt. Það var borðar og talað og hlegið og gaman. Mér fannst alveg yndislegt að fá að mixa vinahópunum mínum saman, s.s systkinum mínu, ítölsku vinum mínum og svo öllum hinum skyptinemunum, það var mjög áhugavert því ég hafði aldrei kynnt einum fyrir hinum. Miriam og Feli keyptu köku, kerti og blöðrur þannig þetta var svona einsog alvöru afmæli. Þau sungu fyrir mig og það var svo hátt og skýrt að það yfirgnæfði alveg allann veitingarstaðinn og ég held að það hafi ekki farið framhjá neinum að ég ætti afmæli. Fékk svo óskir frá ókunnugum og rosa gaman :)))





Svo fóru þeir heim sem þurftu og héldum við svo til að hitta hina á skemmtistaðnum Limelight. Ég var alveg í sæluvímu allt kvöldið og mér fannst svoo yndislegt að vera að dansa með öllum svona saman. Við vorum u.þ.b 20 og ég tók frá borð á svona einkaspotti inná staðnum þannig það var ekekrt að vera að týna einum né neinum. Það var dansað alveg roosalega mikið og allir rosa glaðir og gaman.



gaman







Fékk blis! 


Hamingjusöm

hamingjusöm 2




No comments:

Post a Comment