Wednesday, October 26, 2011

Aprica camp!

Ciao Ísland ! Ætla að byrja á því að afsaka lélega framistöðu mína á blogginu, er ekki búin að vera nógu dugleg! Ég hef ákveðiði að deila með ykkur síðustu helgi :) 
Hún byrjaði sem sagt á fimmtudagsmorgni þar sem ég tók strætó og svo metro á "Centrale Milano" sem er ein af mörgum lestarstöðum í Milan. Ég hitti alla krakkana og svo fórum við á Börger King.... að vana. Átum á okkur göt og svo lögðum við af stað til Apricu, sem er s.s lítill fjallabær í Lombardiu :) Rosa fjör í rútunni og við vorum mun fleiri heldur en ég bjóst við. Rútan var á 2 hæðum og ég held að við höfum verið eitthvað í kringum 80 manns. Þegar við komum á þriggja stjörnu hótelið okkar var raðað í herbergi og ég lenti með Morgan (Nýja Sjáland), Anne (Þýskaland), einhver frá dóminíska lýðveldinu og svo ein krúttla sem ég man EKKI hvað heitir en er frá Gvatemala.


Morgan (Nýja sjáland) og ég. Herbergisfélagar! 
 Helgin var svo öll eiginlega bara sama prógrammið, vakna klukkan hálf átta, morgunmatur á milli átta og níu. "Orientation" á milli morgun- og hádegismats. Svo var svona smá frítími til þess að mingla aðeins. Við krakkarnir frá norðurlöndunum náðum held ég best saman, ekkert skrítið. Mér fynnst þau öll rosa frábær :) 


Vorum ekki fleiri ! Helena (Finnland), Miriam (Dannmörk), Ég, Carolina (finnland),
Petja (finnland), Guðrún (Ísland), Thea og Birgitta (Noregur) :)))




Svo var kvöldmatur og yfirleitt einhverjir leikir á kvöldin, sem ég hefði nú reyndar ekkert gaman af. Á laugardaginn var nú samt göngutúr um þorpið. 




Guðrún var með


Á laugardagsköldið var svo hitt stórfenglega "Talent show"... fékk 8-pack eftir það kvöld, alveg klárlega. Eins og kannski sum ykkar hafa séð ákváðum ég og Guðrún að taka Latibæ (gríðarlega góð hugmynd). Þetta var nú ekki stoltasta stund lífs mín en þið getið séð það á profile-inum mínum á facebook! 
Allt tilbúið ! 
Við krakkarnir stálumst samt þarna inn á milli til að fara að skoða hestana ! :) 




Ég skemmti mér ótrúlega vel, alveg mun betur en ég bjóst við og kynntist krökkunum öllum mun betur :) Langar að setja fullt af fleiri myndum en klukkan er orðin alltof margt og mig langar bara í háttinn ! Svo Bouna notte, 
- bjarney

Friday, October 7, 2011

Manifestazione

Ég fór ekki í skólann í dag (jeess) því það var "demonstration" í Milan. Allir sem eru í "highschool" slepptu skóla og fóru í Milan í staðinn. Við mættum um 10 leitið og þá var allt byrjað. Alveg trooðið af unglingum, án gríns örugglega fleiri heldur en búa á Íslandi, og allir með tvær línur í andlitinu og "pís" merkið á enninu! Lögreglan leiddi og og rak risalestina svo þetta var friðsamlegt. Það var samt rosalegur hávaði og ég hef held ég aldrei séð svona mikið af unglinum áður. Það var sendibíll eiginlega fremst sem var með risa hátalara og tónlist í botni alla leiðina, allir syngjandi og öskrandi eitthvað á ítölsku. Skildi ekki neitt en ég veit að það var tekið upp nokkuð oft að öskra "piece of shit" á ítölsku og allir tóku alltaf undir. Það voru allir alltaf að týnast og ég týndi krökkunum svona 5 sinnum sem var alveg óþolandi, en samt allt í lagi. Við löbbuðum þvilíkt langt og á meðan því stóð var öll umferð alveg stopp. Við gengum á götum og ljósum og hringtorgum og ef ég leit til hliðar sá ég bara einhverja kássu af bílum að reyna að komast eitthvað, ítalar taka það mjög oft upp að reyna að troða sér hvert sem þeir komast en í þetta skipti virkaði það ekki! Mér fannst alveg geðveikt gaman og ég mæti pottþétt næst!


Reyndu að finna mig! 


-bjarney

Flashmob

Síðasta laugardag (1.Okt) fór eg ekki í skólann því það var Intecultura (AFS) day í Milan. Allir skiptinemarnir frá norðurhluta Ítalíu komu og það var rosa fjör. Ég byrjaði daginn klukkan 9 þegar ég tók metro til Cadorna og þar hitti ég Miriam (dannmörk) og Evu (þýskaland). Við fórum í aðra metro og á aðal lestarstöðina í Milan. Þar komu allir hinir skiptinemarnir og við ætluðum að hitta þau og eyða deginum með þeim. Við mættum þar klukkan hálf ellefu og þau áttu að koma með lestum klukkan ellefu. Ég var rosalega svöng þannig við fórum á Burger King og ég fékk mér einn stórann og ljúffengann hamborgara. Klukkunni vantaði fimm mínútur í ellefu þegar ég var búin og fórum við þá að lestarteinunum og biðum spenntar. Við sáum þó enga sjálfboðaliða merkta AFS neinstaðar sem okkur fannst roosalega skrítið. Klukkan tíu mínútur yfir ellefu fórum við eitthvað að vafra um og reyna að finna hóp af fólki í gulum bolum(AFS bolirnir). Auðvitað fundum við ekki neitt né neinn, nema reyndar Klöru (Tékkland) sem ætlaði að koma með okkur. Við 4 dönduluðumst þarna á lestarstöðinn í svona 20 mín og svo fórum við að spurja alla hvort þau hafi séð hóp af fólki í gulum bolum, enginn kvaðst hafa séð neitt því líkt. Við gáfumst upp og ákváðum að fara til Duomo. Miriam hringdi svo í "host" mömmu sína og bað hana að finna út hvar allir væru. Nýkomnar til Duomo og þá fékk Miriam símtal frá mömmu sinni sem sagði okkur að fara aftur í Metro, frábært. Við fundum staðinn á endanum og hópinn, og auðvitað var enginn kominn í gula bolinn sinn! Við fórum í fullt af leikjum og gengum í gegnum alla "center of Milan". Það var mjög gaman að fá að hitta alla krakkana aftur og kynnast þeim betur. Guðrún Elín var þarna og mér fannst bara geeðveikt skrítið að vera að tala íslensku eitthvað. Það eiginlnega passaði ekki og ég byrjaði oft að tala ensku við hana.. sem var eginlega bara meira skrítið haha. Þegar við komum að Duomo keyptu allir sér nesti og við fórum í "The park" og borðuðum þar. Það var rosa kósý og mikið spjallað og hlegið og gaman. Yuan (rubix cube) kom þar og fór að sega kínverska brandara sem mér fannst bara geðveikslega fyndnir og ég gat ekki hætt að hlæja, ég með minn asnahúmor (Einu sinni var banani að labba, og svo bara alltíeinu rann hann). Við löbbuðum svo öll að Leonardo Da Vinci styttunni og biðum þar eftir fleiri skiptinemum og sjálfboðaliðum. Áður en ég vissi vorum við orðin alveg grííðarlega mörg og klukkan 4 fórum við öll í gulu bolina okkar og lögðum af stað á torgið hjá Duomo.

Alveg að verða tilbúin !


Klukkan korter yfir fjögur byrjaði "The flashmob", sem var eiginlega aðalástæða dagsins. Það var rosalega random og fyndið. Við breiddum aðeins úr okkur og við vorum svo mörg að við fylltum torgið. Þegar allir heyrðu fyrsta flautið frusu ALLIR á torginu, skipti ekki máli hvernig stöðu þú varst í þú varst alveg frosin. Þetta stóð yfir í eina og hálfa mínútu og það var geðveikt fyndið að sjá viðbrögð vegfarenda um torgið. Enginn þorði að ganga í gegn og fólk stóð bara og starði undrandi augum. Við annað flaut tóku allir upp bók á sínu tungumáli og byrjuðu að lesa. Þetta stóð yfir í 2 mínútur og það var svooo mikill hávaði að ég heyrði ekki í sjálfri mér lesa. Mér fannst þetta ógeðslega fyndið og var með frosið bros allann tímann, sérstaklega af því allt fólkið vissi ekkert hvað var í gangi og starði bara með opinn munn niðrá jörð. Þegar við heyrðum 3 flautið hættum við að lesa og allir öskruðu Ciao Praga ! Ástæðan fyrir því var sú að AFS um allann heim er að gera myndband af öllum borgum sem bjóða uppá skiptinemadvalir. Prag var næsta borg til þess að gera flashmob og þessvegna öskruðum við Praga. Prag segir svo hæ einhver borg, á þeirra tungumáli og svo gengur það hringinn þar til einhver segir hæ Milano. Mjög sniðugt. Eftir þetta fórum við í leik sem allir þekktu síðan á "The arrival camp" og það var líka geðveikt fyndið. Allir standa s.s. í línum og þetta voru ekkert eitthvað nokkrar línur, meira svona 50! Og sjálfboðaliði stendur fyrir framan hverja línu og þau öskra öll, left, left, left right left nokkrum sinnum og svo byrjar það yfirleitt á LET ME SEE YOU DO THE FUNKY CHIKEN, og þá segum við öll WHAT DID YOU SAY?  Það kemur 3 og svo gerum við öll skrítið hljóð og leikum kjúklinga! Svo er líka Frankenstein, Paris Hilton, Superman, Danza kuduro og svo fr.v. Ógeðslega fyndið og gaman. Svo var myndataka.
   
                                                                  Sést oggupons í hausinná mér hérna !
                                                 

    Við Milano krakkarnir fórum á kaffihús og svo var bara haldið heim. Þetta var frábært laugardagur og eg get ekki beðið eftir "six week camp" !


-bjarney