Hún byrjaði sem sagt á fimmtudagsmorgni þar sem ég tók strætó og svo metro á "Centrale Milano" sem er ein af mörgum lestarstöðum í Milan. Ég hitti alla krakkana og svo fórum við á Börger King.... að vana. Átum á okkur göt og svo lögðum við af stað til Apricu, sem er s.s lítill fjallabær í Lombardiu :) Rosa fjör í rútunni og við vorum mun fleiri heldur en ég bjóst við. Rútan var á 2 hæðum og ég held að við höfum verið eitthvað í kringum 80 manns. Þegar við komum á þriggja stjörnu hótelið okkar var raðað í herbergi og ég lenti með Morgan (Nýja Sjáland), Anne (Þýskaland), einhver frá dóminíska lýðveldinu og svo ein krúttla sem ég man EKKI hvað heitir en er frá Gvatemala.
| Morgan (Nýja sjáland) og ég. Herbergisfélagar! |
| Vorum ekki fleiri ! Helena (Finnland), Miriam (Dannmörk), Ég, Carolina (finnland), Petja (finnland), Guðrún (Ísland), Thea og Birgitta (Noregur) :))) |
Svo var kvöldmatur og yfirleitt einhverjir leikir á kvöldin, sem ég hefði nú reyndar ekkert gaman af. Á laugardaginn var nú samt göngutúr um þorpið.
| Guðrún var með |
Á laugardagsköldið var svo hitt stórfenglega "Talent show"... fékk 8-pack eftir það kvöld, alveg klárlega. Eins og kannski sum ykkar hafa séð ákváðum ég og Guðrún að taka Latibæ (gríðarlega góð hugmynd). Þetta var nú ekki stoltasta stund lífs mín en þið getið séð það á profile-inum mínum á facebook!
| Allt tilbúið ! |
Ég skemmti mér ótrúlega vel, alveg mun betur en ég bjóst við og kynntist krökkunum öllum mun betur :) Langar að setja fullt af fleiri myndum en klukkan er orðin alltof margt og mig langar bara í háttinn ! Svo Bouna notte,
- bjarney
No comments:
Post a Comment