Okei jæja.. Ég er búin að búa á Ítalíu í 12 vikur núna. Búið að vera óótrúlega fljótt að líða og ég veit að ég verð komin heim áður en ég veit af. Þess vegna er ég að reyna að njóta mín sem best við hvert tækifæri.
Ég er búin að eignast ótrúlegustu vini hérna, fjölskyldan mín er yndisleg og ég elska þau öll, undantekningarlaust. Ég er hamingjusöm :)
Ég elska Milan, mér finnst hún rosa falleg borg og ég veit að ég er ekki einu sinni búin að skoa 1/10 af henni, planið er að drífa í því að explora eins og ég get. Vikurnar mínar eru samt svo pakkaðar og það er alltaf eitthvað sem ég þarf að gera eða sem ég er búin að plana þannig það er erfitt fyrir mig að reyna að finna frítíma.
![]() |
| Elska Milan að nóttu ! |
Ég er í skóla frá 8-13 alla virka daga nema á fimmt, þá er ég frá 8-15. Svo er ég á laugardögun frá 8-12. Skoðun mín á þessu skólasystemi er ágæt. Búin klukkan 1 og þú hefur allann daginn frammundan og hefur tíma til þess að gera það sem að þú villt, öfugt við á íslandi þar sem þú kemur heim úr skólanum, ferð í sturtu og þá er kvöldmatur. En þrátt fyrir þetta, þá ÞARF ég mína 2 frídaga í viku! Stundaskráin mín er samt bara mjög fín. Fékk persónulega stundaskrá sem ég var rosa sátt með. Ég er í þriðja bekk H, sem er ágætt.. þær, já bara þær, eru ágætar að sínu leiti :) Ein stelpa frá Írlandi er með okkur líka og ég er alltaf með henni bara. Ekki gott því við tölum bara ensku! Hún er samt að fara heim núna í desember þannig ég verð að fara að drífa mig í að tala meiri ítölsku. Ég er að taka ensku með 5. bekk A og það er bara fínt.. allir voða næs þar og svo er ég að taka frönsku með 2. bekk G sem er rosa fínt.
Mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga fer ég á ítölskunámskeið. Tvo tíma í senn. Mánudaga og fimmtudaga er ég í skólanum á fríu námskeiði sem fjölskyldan mín skráði mig í, sem er ágætt.. fullt af fólki frá pakistan og moldavíu.. mjög skruatleg öll sömul. OOg á miðvikudögunm og föstudögum er ég á námskeiði í Piazza Doumo með Intercultura (AFS), sem mér finnst bara ótrúlega gaman því við erum alveg frábær hópur og alltaf hlægandi og brosandi og stríðandi.
| Koh, frá tælandi og Feli frá þýskalandi |
| Eva frá þýskalandi |
| Klara, tékkland, Cami frá argentínu og Maija frá lettlandi :) |
| Miriam, dk og Laura frá argentínu |
| bjarney og helena |
| Guðrún og Klara, frá tékklandi |
| Miriam sæta |
| Ég og Helena |

Ég borða alltaf Kvöldmat heima með fjölskyldunni á virkum dögum, og þar inní eru auðvitað föstudagar!
Á laugardögum fer ég alltaf út og það er alltaf jafn gaman. Utan við að það er ekkert grín hvað ítalir eru miklir perrar, þurfti að slá einn um daginn! Ekkert grín..
| Ég og Miriam |
| Stelpurnar hressar að taka fystu lestina eftir gott kvöld. |
Fjölskyldan mín er alltaf að byðja mig um að elda eitthvað íslenskt handa þeim. Ég er alveg til í það er vandamálið er að ég er enginn kokkur, satt að sega er ég alveg hræðinlegur kokkur!! Þrátt fyrir það hef ég nú getað fundið mig í eldhúsinu við bakstur á ýmsu þannig að um daginn bakaði ég í fyrsta sinn pönnukökur ! Það er náttúrulega engin pönnukökupanna hérna þannig ég átti í svolitlum erfðileikum með baksturinn! en það gékk samt fínt og allir fengu íslenska pönnukökur með Nutella. Þar sem að enginn rjómi var til eða rabbabarasulta! Ég var himinlifandi með útkomu fyrsta pönnukökubakstursins míns. Næst á dagskrá er hjónabandasæla ! Það verður sko skrautlegt.
- bjarney
Ps. þið megið búast við videóbloggi einhvertíman á næstunni :)))

No comments:
Post a Comment