![]() |
| Á leið í sporvagninn |
Alrightí, í gær sunnudaginn 27. Nóv. fórum við í litla borg aðeins norðar en Milan sem heitir Bergamo. Við fórum 6 sama. Ég, Host mamma Seve, host systkini mín Tommaso, Gioele, og Fiore, og svo kærastan hans Gioele Elisa. Fórum bara beint eftir hádegismat og það tók svona klukkutíma að keyra. Það var allt troðið þarna og þegar við komum var þvílíkt vesen að finna bílastæði en það tókst nú á endanum. Allir í Bergamo komnir í þvílíkt jólastuð og allt skreytt og fullt af jólamörkuðum og jólanammi og öllu því tengt. Við gengum um alla borgina og enduðum hjá einhverjum svona pínulitlum sporvagni. Keyptu voru miðar og svo allir inní sporvagninn. Sporvagninn fór s.s með okkur upp, og ég held að þetta sé eitthvað svona önnur lítil borg í hinni borginni sem heitir s.s Cittá Atla. Borgin er 1 milljón og 400 ára gömul og ótrúlega falleg .. var mað hökuna í gólfina meira en helminginn af tímanum.
![]() |
| Útsýnið úr hinni borginni |
Fórum í kirkjuna þarna og það var bara bókstaflega það fallegast sem ég hef séð á ævi minni. Hugsaði allann tímann hvað mamma hefði notið sín þarna!
![]() |
| Gioele- hostbróðir, Elisa-kærastan hans, Tommi- hostbróðir, ég og Fiore (ég kalla hana Blóm) -hostsystir mín :))) Á kaffihúsi í Bergamo ! |
Þangað til næst -bjarney
ps. lofa að bíða ekki í mánuð þangað til ég blogga næst !!!



No comments:
Post a Comment