Tuesday, December 13, 2011

Ciao cara Islanda !

Hæ elsku Ísland. Ætlaði bara aðeins að update-a ykkur :)

ókei, síðustu vikur hafa verið mjög ánægjulegar. Ég er rosalega lítið heima og er búin að vera að skoða borgina mikið, ég er alveg ástfangin af henni og ég elska að lifa hérna. Allt of mikið til þess að skoða! 
Byggingin !

Um daginn fór ég á stærsta markað sem ég hef séð ! Það var rosalegt ! Það voru s.s. fjórar risa byggingar og 10 svæði.          


Svæði 1-5 voru Ítalía. Og það var bara bókstaflega allar borgir á Ítalíu og allt sem því tengist. 
ítalía
Ítalía


Evrópa
Hálft svæði 5 og svæði 7 var Evrópa, þrátt fyrir það var ekki ögn að finna frá neitt af norðurlöndunum! Ég var alveg þvílíkt 
hneyksluð. Þar mátti finna Frakkland, Spán, Sviss, Austurríki, Portúgal.... o.s.frv. 
Og svæði 6 og 10 voru bara "paesi del mondo" eða lönd heimsins. Mér fannst það mest spennandi og eyddi mestum mínum tíma þar. Afríka, Indland, Mexíkó, USA, Perú.. og fuuuullt fleira. 
Við skoðuðum aallt og það tók heavy langann tíma! Borðuðum svo í Cuba, baunir og hrísgrón fyrir 15 evrur !!! Ágætis matur en ég hef aldrei séð svona mikið eftir pening! 

Keypti líka nóg af jólagjöfum og svona, það var rosalega gaman en var þvílíkt þreytt eftir daginn ! 



Stelpurnar líka þreyttar 



Ég og Helena fórum líka í miðbæinn og reyndum að finna eitthvað meira af jólagjöfum, það var rosa kósý og allt skreitt og gaman :) 


Jólatréið komið upp ! :) 
Um daginn ákváðum við stelpurnar líka að gera smá jólabakstur. Við hittumst allar heima hjá Feli, og þar sem hún er frá Þýskalandi gerðum við þýskar jólasmákökur. 
Ég og Helena gerðum þessar.
Borðuðum líka allar kvöldmat með henni og host-fjölskyldunni hennar. Feli og Eva, ákváðu þá að nýta tækifærið og búa til eitthvað þýskt, þar sem Eva er líka frá Þýskalandi. Ég hef borðað margt skrítið en þetta sló öllu við sem kvöldmatur. Þetta var svona sætt, slímugt, soðið og með sultu inní! Það bragðaðist svo sem ágætlega en var ekki að búast við einhverju svona í kvöldmatinn. 

Svo um daginn fórum við líka á skauta! Skemmti mér all svaðalega vel þann dag. 
Allur hópurinn utan við Lizzy, þar sem hún var einhverstaðar
með nýja ríka mexíkóska kæró ! 
Fórum svo eftir á öll saman út að borða og svona kósý ! :)


xxo -bjarney

No comments:

Post a Comment