Í dag er 29. desember og ég sit í sófanum og horfi á Lie to Me, ég er ein heima í fyrsta skiptið held ég. Mér finnst það stórmerkilegt, auðvitað er amma hér, hundurinn, kettirnir og fuglarnir þannig það er ekki beint allt tómt en þetta gerist ALDREI! Ástæðan er sú að Host mamma, Blóm, Gioe og Tommi eru í einhverjum bæ að vinna yfir nýárs. Virgi, Ser og Miriam fóru til Milano og Host pabbi er bara í vinnunni, ég er of löt til að standa upp úr sófanum þannig ég ætla bara að vera heima í dag.
Jólin hérna voru yndisleg, ég skemmti mér konunglega og var með frosið bros alveg þangað til mamma hringdi frá jólaboðinu heima hjá ömmu hröbbu.
24. desember var svosem ekkert merkilegur, ég var meira en minna leið allann daginn og ég gerði þau mistök að vera alltaf að líta á klukkuna og hugsa um hvað ég hefði verið að gera ef ég væri heima. heimsk.
En Dagurinn var samt góður, við vöknuðum öll snemma og byrjuðum að búa til hádegismatinn saman. Bara venjulegur hádegisverður. 24. desember er kallaður "preparazione del giorno" eða undirbúnings dagur. Við elduðum og bökuðum allann daginn og það var alveg brjálað að gera. Frekar erfittt að reyna að gera eitthvað að viti þegar það eru 10 manneskjur í eldhúsinu og aallir útum allt. Um kvöldið borðuðum við alveg geðveikt góðann lax og fórum svo bara snemma í háttinn, allir spenntir fyrir morgundeginum.
| Venjulegur kvöldverður á ítalíu 24. des. |
| Næstum allir pakkarnir |
25. kom Mari stóra systir hingað klukkan 8 og ákvað að hlaupa upp og niður út og inn öskranidi "ÞAÐ ERU JÓL, VAKNIÐI, PAKKARNIR GLEÐILEG JÓL", nema náttúrulega á ítölsku. Minnti mig á amerísku bíómyndirnar þegar börnin hoppa í rúmi foreldra sinna 25. des.
Við fórum öll niður og allir sátust niður í stofunni. Allir fengu sína pakka í hendurnar og svo bara bara sagt einn, tveir og þrír og þá var bara rifið allt upp ! Frekar fyndið en gaman ! Ég fékk ilmvatn, fullt af bolum, pils, nokkur pör af eyrnalokkum, varaliti, gollu, eyrnaskjól, pening, veski, tösku og eitthvað meira man ekki. Var rosa sátt með allt og allir voru líka rosa sáttir með gjafirnar frá mér :)
við borðuðum morgunmat og svo fóru allir upp í sturtu og til að gera sig fína. Allar sturtur í notkun þannig vatnið var ískallt! Alveg æðislegt. Samt bara fyndið. Þegar við vorum ready fórum við niður til þess að elda hádegismatinn og gera allt ready, ég lagði fínt á borð og gerði fiskinn.
við borðuðum morgunmat og svo fóru allir upp í sturtu og til að gera sig fína. Allar sturtur í notkun þannig vatnið var ískallt! Alveg æðislegt. Samt bara fyndið. Þegar við vorum ready fórum við niður til þess að elda hádegismatinn og gera allt ready, ég lagði fínt á borð og gerði fiskinn.
| Matarborðið ready |
Klukkan 2 voru allir komnir og allt var tilbúið. Við vorum 15 hérna heima að borða. Bara fjölskyldan og svo komu líka 3 fatlaðir :) Það var borðað alveg ALLT of mikið, ég virkilega hélt að ég væri að deyja eftir síðasta disk. Fyrst var brauð og snakk og fullt af salati og reyktum laxi og osti og allt það. Svo var auðvitað pasta, graskera.. geeeðveikt gott. Svo var fiskur, lax aftur.. eelska lax, svo var lamb með fullt af góðgæti og svo voru kökur og nammi og kex og allt.
Allt í allt voru þetta 5 máltíðir. Þetta var allt aaaaagalega gott en allt of mikið.
| Allir fullir sen samt spenntir fyrir risakökunni |
26. desember var rosalega kósý bara. Við vöknuðum snemma og fórum öll í göngutúr við einhverja á svona hálftíma í burtu. 10 kílómetra löbbuðum við, stoppuðum samt smá á milli við ánna til þess að fletja kellingar og njóta útsýnisins.
| Allir saman nema seve og Gioe |
| Sergio að kenna mer að fletja kellingar |
Jólin voru æðisleg og ég get ekki beðið eftir gamlárs. Það kemur blogg um það sem fyrst.
Þar til næst .. CIAOOOO
-bjarney
No comments:
Post a Comment