Monday, November 28, 2011

Bergamo !

Á leið í sporvagninn
Ákvað að skella einu litlu í víðbót fyrst ég er nú í stuði í dag ! :)

Alrightí, í gær sunnudaginn 27. Nóv. fórum við í litla borg aðeins norðar en Milan sem heitir Bergamo. Við fórum 6 sama. Ég, Host mamma Seve, host systkini mín Tommaso, Gioele, og Fiore, og svo kærastan hans Gioele Elisa. Fórum bara beint eftir hádegismat og það tók svona klukkutíma að keyra. Það var allt troðið þarna og þegar við komum var þvílíkt vesen að finna bílastæði en það tókst nú á endanum. Allir í Bergamo komnir í þvílíkt jólastuð og allt skreytt og fullt af jólamörkuðum og jólanammi og öllu því tengt. Við gengum um alla borgina og enduðum hjá einhverjum svona pínulitlum sporvagni. Keyptu voru miðar og svo allir inní sporvagninn. Sporvagninn fór s.s með okkur upp, og ég held að þetta sé eitthvað svona önnur lítil borg í hinni borginni sem heitir s.s Cittá Atla. Borgin er 1 milljón og 400 ára gömul og ótrúlega falleg .. var mað hökuna í gólfina meira en helminginn af tímanum. 

Útsýnið úr hinni borginni



Fórum í kirkjuna þarna og það var bara bókstaflega það fallegast sem ég hef séð á ævi minni. Hugsaði allann tímann hvað mamma hefði notið sín þarna!


Gioele- hostbróðir, Elisa-kærastan hans, Tommi- hostbróðir, ég og
Fiore (ég kalla hana Blóm) -hostsystir mín :)))
Á kaffihúsi í Bergamo ! 
 Ferðin var roosa kósý og ég skemmti mér vel. Fórum á kaffihús og löbbuðum um allt og keyptum nammi og spjölluðum og bara rosa gaman :) 









Þangað til næst -bjarney 


ps. lofa að bíða ekki í mánuð þangað til ég blogga næst !!!

La mia Vita, é bella.

Hæ elsku ísland ! Sorry ég er ömurleg í að blogga ég veit. Það er bara svooo leiðinlegt ! Er samt að gera þetta, bara fyrir ykkur ! 


Okei jæja.. Ég er búin að búa á Ítalíu í 12 vikur núna. Búið að vera óótrúlega fljótt að líða og ég veit að ég verð komin heim áður en ég veit af. Þess vegna er ég að reyna að njóta mín sem best við hvert tækifæri. 


Ég er búin að eignast ótrúlegustu vini hérna, fjölskyldan mín er yndisleg og ég elska þau öll, undantekningarlaust. Ég er hamingjusöm :) 


Ég elska Milan, mér finnst hún rosa falleg borg og ég veit að ég er ekki einu sinni búin að skoa 1/10 af henni, planið er að drífa í því að explora eins og ég get. Vikurnar mínar eru samt svo pakkaðar og það er alltaf eitthvað sem ég þarf að gera eða sem ég er búin að plana þannig það er erfitt fyrir mig að reyna að finna frítíma. 
Elska Milan að nóttu !
                                
Ég er í skóla frá 8-13 alla virka daga nema á fimmt, þá er ég frá 8-15. Svo er ég á laugardögun frá 8-12. Skoðun mín á þessu skólasystemi er ágæt. Búin klukkan 1 og þú hefur allann daginn frammundan og hefur tíma til þess að gera það sem að þú villt, öfugt við á íslandi þar sem þú kemur heim úr skólanum, ferð í sturtu og þá er kvöldmatur. En þrátt fyrir þetta, þá ÞARF ég mína 2 frídaga í viku! Stundaskráin mín er samt bara mjög fín. Fékk persónulega stundaskrá sem ég var rosa sátt með. Ég er í þriðja bekk H, sem er ágætt.. þær, já bara þær, eru ágætar að sínu leiti :) Ein stelpa frá Írlandi er með okkur líka og ég er alltaf með henni bara. Ekki gott því við tölum bara ensku! Hún er samt að fara heim núna í desember þannig ég verð að fara að drífa mig í að tala meiri ítölsku. Ég er að taka ensku með 5. bekk A og það er bara fínt.. allir voða næs þar og svo er ég að taka frönsku með 2. bekk G sem er rosa fínt. 


Mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga fer ég á ítölskunámskeið. Tvo tíma í senn. Mánudaga og fimmtudaga er ég í skólanum á fríu námskeiði sem fjölskyldan mín skráði mig í, sem er ágætt.. fullt af fólki frá pakistan og moldavíu.. mjög skruatleg öll sömul. OOg á miðvikudögunm og föstudögum er ég á námskeiði í Piazza Doumo með Intercultura (AFS), sem mér finnst bara ótrúlega gaman því við erum alveg frábær hópur og alltaf hlægandi og brosandi og stríðandi. 




Koh, frá tælandi og Feli frá þýskalandi 


Eva frá þýskalandi


Klara, tékkland, Cami frá argentínu og Maija frá lettlandi :)
 Við allir krakkarnir sem komu með AFS til Milan erum 11 og við erum mjög dugleg í að hittast og gera eitthvað saman, Og það er alltaf jafn gaman:) Mér finnst líka óótrúlega fyndið þegar við erum allur hópurinn saman úti að borða eða eitthvað því líkt og það er spurt okkur hvaðan við erum. Það er bara ísland, dannmörk, þýskaland, finnland, argentína, thailand, lettland, tékkland, ameríku.. o.s.fv. Fer eftir ýmsu. Kemur alltaf sami svipur á fólk, bara, hvernig í andskotanum þekkist þið!? En nóg með það. 
Miriam, dk og Laura frá argentínu 


bjarney og helena 


Guðrún og Klara, frá tékklandi 


Miriam sæta
Í sambandi við hádegismat núna þá borða ég hann heima þegar ég get, þar sem ég er blönk.. hver bjóst ekki við því ??? .. en það er bara fínt, bara MEIRA pasta í staðin fyrir Burger King eða McDonalds!  


Ég og Helena
Ég eyði mestum mínum frítíma með Helenu, frá Finnlandi, hún er alveg yndisleg og við eigum allt sameiginlegt, og Miriam, frá Dannmörku. Lizzy, frá ameríku er líka þarna rétt á eftir og Feli frá Þýskalandi. Við förum oftast á uppáhalds kaffihúsið okkar, Arnold Coffee, sem er Amrískt og ótrúlega kaldhæðnislegt þar sem við allar kusum að koma til Ítalíu í staðin fyrir að fara til Ameríku. Það er samt rosa kósý, mér líður smá eins og ég sé á kaffihúsi heima á íslandi. 
                 


Ég borða alltaf Kvöldmat heima með fjölskyldunni á virkum dögum, og þar inní eru auðvitað föstudagar! 


Á laugardögum fer ég alltaf út og það er alltaf jafn gaman. Utan við að það er ekkert grín hvað ítalir eru miklir perrar, þurfti að slá einn um daginn! Ekkert grín..


Ég og Miriam 
Stelpurnar hressar að taka fystu lestina eftir gott kvöld.
Ég elska sunnudaga. Við vöknum öll klukkan 11 og borðum morgunmat saman. Allir geðveikt myglaðir og þau eldri alltaf þunn, ógeðslega fyndið. Svo þrífa allir húsið, allir með sín húsverk, var örugglega búin að deila því með ykkur.. man ekki, allavegan þá þrífa ég alla 3 stigana. Svo þegar allir eru búnir með sitt fara allir niður og hjálpast að við að elda hádegismat. Strákarnir setja Bob Marley í tækið og allir eru syngjandi og dansandi og brosandi og skerandi og eldandi. Alltaf stórt bros á mér þá :D. 


Fjölskyldan mín er alltaf að byðja mig um að elda eitthvað íslenskt handa þeim. Ég er alveg til í það er vandamálið er að ég er enginn kokkur, satt að sega er ég alveg hræðinlegur kokkur!! Þrátt fyrir það hef ég nú getað fundið mig í eldhúsinu við bakstur á ýmsu þannig að um daginn bakaði ég í fyrsta sinn pönnukökur ! Það er náttúrulega engin pönnukökupanna hérna þannig ég átti í svolitlum erfðileikum með baksturinn! en það gékk samt fínt og allir fengu íslenska pönnukökur með Nutella. Þar sem að enginn rjómi var til eða rabbabarasulta! Ég var himinlifandi með útkomu fyrsta pönnukökubakstursins míns. Næst á dagskrá er hjónabandasæla ! Það verður sko skrautlegt. 


- bjarney


Ps. þið megið búast við videóbloggi einhvertíman á næstunni :)))