Friday, January 13, 2012

Sono andata a Torino !

Ciao ísland ! 

Um daginn, 6. janúar til þess að vera nákvæm, fór ég til Torino. Við, Helena (Finnland) og Vivi (Írland) ákváðum þetta í skyndi kvöldið áður og planið var að hittast á lestarstöðinni klukkan 8 um morguninn næsta dag. Sama kvöld hringir Helena og segir að hun sé svo þreitt að hun geti ekki komið fyrr en klukkan 9. Ég hringdi í Vivi og allt í góðu með það. Svo hringir Helena aftur 2 tímum seinna og segir að host-mamma hennar segir að það sé of seint og að hún ætli að skutla henni þangað klukkan hálf 7. Ég sagði að við gætum verið komnar þangað klukkan hálf 8, að hún þurfti ekki að bíða í nema hálftíma. Ég vaknaði svo mjög snemma en sofnaði auðvitað aftur. Við Vivien mættum klukkan 8 og ég með samviskubitið alveg á toppnum, greyið Helena. Hringdi svo í hana u.þ.b 7 sinnum og í 8-unda svaraði hún. Hún var heima..... !!! Ég varð alveg brjáluð og bað hana að drífa sig eins og hún gæti. Helena mætti klukkan hálf 12 hress og brosandi, ég búin að líma rassinn á mér við stólinn sem ég hafði setið á síðustu 3 tímana. Hún er yndisleg. 

AAllavegana, við keyptum miða í næstu lest og héldum svo af stað. Lestarferðin tók um 2 tíma og þar planaði ég allan daginn, þar sem að við höfðum ekki jafn mikinn tíma og við ætluðumst fyrir. Ég tók upp kortið og fékk lánaðann penna hjá Ástralska stráknum sem sat við hliðina á mér. Ákváðum fyrst allt sem við vildum skoða og svo heppilega var að þetta var allt, næstum, á sama stað. Krassaði og krassaði einsog ég gat og þá var komið plan fyrir daginn! 

Hressar í lestinni

"Í dag er þinn stóri dagur?" já held það !
Um 2 leitið vorum við komnar til Torino. Það var haldið beint af stað, gengum í gegnum garðinn (1) og svo framhjá "Fondazione palazzo bricherasio"  sem var eitthvað frægt hús, man ekki alveg hvað var á bakvið það en það var áhugavert. 

Ætluðum svo á Egypska minjasafið , sem ég var alveg grííðarlega spennt fyrir. Auðvitað, var það lokað. 
Næsta stopp var "Piazza Carignano"  

Haha hun var að reyna að taka í hendina á kallinum !! 

Svo var "Piazza Carlo Albergo"



Skautaa
Það var alveg brjáluð sól og rosa hlýtt, ég held að við höfum allar komið í of hlýjum fötum. 
Við fórum svo og fengum okkur hádegismat. Fengum okkur allar bretti með osti og Helena fékk líka með "Salame" kjöt eitthvað. 5 tgundir af yndislegum osti og svo hunang í miðjunni, nammmm. Rosalega gott, ég var svo full og sátt. 



Eftir matinn löbbuðum við framhjá "Palazzo Madama" 

Svo fórum við á "Piazzetta Reale" og það var alveg brjálað mikið af fallegum byggingum þar. 

San Lorenso, rosalega falleg kirkja.





Svo var haldið í "Palazzo Reale" konungshöllina, auðvitað. Fórum inn og keyptum miða til þess að skoða aðeins 1 hæð sem var bara listasafn úr konungshöllinni. Við vissum ekkert hvert við áttum að fara og enduðum á því að smigla okkur inní hópinn sem borgaði 3-falt meira en við og við fórum upp og skoðuðum konunghöllina sjálfa. Maðurinn útskýrði hvert einasta handverk, allt á ítölsku auðvitað og ég segi nú stolt að ég skildi meiri hlutann af því ! Mátti ekki taka neinar myndir þarna inni, sem ég varð nú frekar svekkt yfir en skil nú fullkomnlega. Höllin var konungsleg ! Gríðarlega fallegt og hvert smáatriði var fullkomið. Öll herbergin risastór og full af málverkum og speglum og gylltum fallegum húsgögnum. Herbergin höfðu öll mislíkt þema og jarðlitirnir notaðir að mestu. Ég hrífðist mest af "Te herberginu", svona sérstaklega til að drekka Te, það var annað fyrir kaffið ! Allavega þá var það bara yndislegt, svona dökk sjóblátt og gyllt, ég hélt um tíma að augun á mér væru að þorna upp en ég tímdi samt ekki að blikka. Yndislegt alveg. BELLISSIMO !  


Þessar myndir eru bara inngangurinn !

Eftir höllina fallegu fórum við á "Armeria Reale" og það er s.s safn með tólunum úr stríðum hér áður fyrr. 
Ég var líka alveg rosaleg spennt fyrir því, maður heldur alltaf að þetta sé bara eitthvað úr myndum. 


Uppstoppað !!!



Kallinn þarna í miðjunni sagði mér bókstaflega svona 7 sinnum að
það væri bannað að taka myndir :s ! 




Við náðum ekki að skoða allt sem ég krassaði á kortið en við misstum bara af 2 stöðum þannig það sleppur, vorum (ég var) frekar bjartsýn á þetta allt saman. Við fórum á lestarstöðina klukkan hálf 8 og fengum okkur þar Pizzu í kvöldmat. 

Lestin lagði svo af stað klukkan átta og ég var komin heim klukkan 11.  Þetta var alveg yndislegur dagur og ég skemmti mér konunglega. Það var nóg af hlátri og gríni. 


Næsta kemur fljótt ! -bjarney 

Sunday, January 8, 2012

Capodanno in Italia

Jææja, halló Ísland ! Nýársbloggið varð að koma einhvertíman. Og ég var víst búin að lofa video-bloggi á næstunni þannig hér kemur það. Það er ekki langt og ekki eins gott og ég vonaðist eftir en þetta tók alveg nógu langann tíma ! Átti líka ótrúlega erfitt með að finna tónlist sem hentaði þannig ég setti bara eitthvað !!

Við enduðum svo heima hjá Miriam um 12 leitið, ég borðaði morgunmat og skellti mér svo beint aftur uppí næstu lest þar sem að ég var búin að lofa mér heim í hádegismat!


Mér fannst kvöldið yndiislegt og að það hafi endað í Sviss var alveg hápunktur allra Gamlárskvölda hingað til. Við hlógum vel og lengi yfir þessari vitleysu í okkur.


þar til næst ! -bjarney

Thursday, December 29, 2011

Natale in Italia

CIAO TUTTI !

Í dag er 29. desember og ég sit í sófanum og horfi á Lie to Me, ég er ein heima í fyrsta skiptið held ég. Mér finnst það stórmerkilegt, auðvitað er amma hér, hundurinn, kettirnir og fuglarnir þannig það er ekki beint allt tómt en þetta gerist ALDREI!  Ástæðan er sú að Host mamma, Blóm, Gioe og Tommi eru í einhverjum bæ að vinna yfir nýárs. Virgi, Ser og Miriam fóru til Milano og Host pabbi er bara í vinnunni, ég er of löt til að standa upp úr sófanum þannig ég ætla bara að vera heima í dag.

Jólin hérna voru yndisleg, ég skemmti mér konunglega og var með frosið bros alveg þangað til mamma hringdi frá jólaboðinu heima hjá ömmu hröbbu.
24. desember var svosem ekkert merkilegur, ég var meira en minna leið allann daginn og ég gerði þau mistök að vera alltaf að líta á klukkuna og hugsa um hvað ég hefði verið að gera ef ég væri heima. heimsk.
En Dagurinn var samt góður, við vöknuðum öll snemma og byrjuðum að búa til hádegismatinn saman. Bara venjulegur hádegisverður. 24. desember er kallaður "preparazione del giorno" eða undirbúnings dagur. Við elduðum og bökuðum allann daginn og það var alveg brjálað að gera. Frekar erfittt að reyna að gera eitthvað að viti þegar það eru 10 manneskjur í eldhúsinu og aallir útum allt. Um kvöldið borðuðum við alveg geðveikt góðann lax og fórum svo bara snemma í háttinn, allir spenntir fyrir morgundeginum.
Venjulegur kvöldverður á ítalíu 24. des.
Næstum allir pakkarnir 


25. kom Mari stóra systir hingað klukkan 8 og ákvað að hlaupa upp og niður út og inn öskranidi "ÞAÐ ERU JÓL, VAKNIÐI, PAKKARNIR GLEÐILEG JÓL", nema náttúrulega á ítölsku. Minnti mig á amerísku bíómyndirnar þegar börnin hoppa í rúmi foreldra sinna 25. des. 
Við fórum öll niður og allir sátust niður í stofunni. Allir fengu sína pakka í hendurnar og svo bara bara sagt einn, tveir og þrír og þá var bara rifið allt upp ! Frekar fyndið en gaman ! Ég fékk ilmvatn, fullt af bolum, pils, nokkur pör af eyrnalokkum, varaliti, gollu, eyrnaskjól, pening, veski, tösku og eitthvað meira man ekki. Var rosa sátt með allt og allir voru líka rosa sáttir með gjafirnar frá mér :)
við borðuðum morgunmat og svo fóru allir upp í sturtu og til að gera sig fína. Allar sturtur í notkun þannig vatnið var ískallt! Alveg æðislegt. Samt bara fyndið. Þegar við vorum ready fórum við niður til þess að elda hádegismatinn og gera allt ready, ég lagði fínt á borð og gerði fiskinn. 
Matarborðið ready
Klukkan 2 voru allir komnir og allt var tilbúið. Við vorum 15 hérna heima að borða. Bara fjölskyldan og svo komu líka 3 fatlaðir :) Það var borðað alveg ALLT of mikið, ég virkilega hélt að ég væri að deyja eftir síðasta disk. Fyrst var brauð og snakk og fullt af salati og reyktum laxi og osti og allt það. Svo var auðvitað pasta, graskera.. geeeðveikt gott. Svo var fiskur, lax aftur.. eelska lax, svo var lamb með fullt af góðgæti og svo voru kökur og nammi og kex og allt. 
Allt í allt voru þetta 5 máltíðir. Þetta var allt aaaaagalega gott en allt of mikið. 
Allir fullir sen samt spenntir fyrir risakökunni
svooo góð
Eftir þetta var spilað Alias. Ég var alveg hræðinleg í því í alla staði, það gékk samt fínt og mitt lið vann :) Við spiluðum líka bingó, það er kallað Tombola hér sem mér finnst bara ógeðslega fyndið. Svo var gert matinn ready og svo var borðað. Kvöldmáltíðin var eiginlega bara alveg eins og hádegismaturinn nema öðruvísi salat og pasa og fiskur og það var kalkúnn í staðinn fyrir lamb. Eftir kvöldmat settu strákarnir hvítt teppi uppá vegg, ég var bara hvaað eru þið að gera. Eina sem ég fékk í svar var karíókí. Við sungum fullt af ítölskum lögum og enskum og það var alveg pottþétt eitthvað nýtt og rosa gaman :) 
26. desember var rosalega kósý bara. Við vöknuðum snemma og fórum öll í göngutúr við einhverja á svona hálftíma í burtu. 10 kílómetra löbbuðum við, stoppuðum samt smá á milli við ánna til þess að fletja kellingar og njóta útsýnisins. 
Allir saman nema seve og Gioe 

Sergio að kenna mer að fletja kellingar 
Jólin voru æðisleg og ég get ekki beðið eftir gamlárs. Það kemur blogg um það sem fyrst. 


Þar til næst .. CIAOOOO

-bjarney