Ciao Ísland ! Vikan er búin að vera frábær. Á miðvikudaginn fór ég með Miriam í "mollið" og það var mjög gaman, keyptum fullt af dóti í skólann og svona. Á fimmtudaginn var fyrsti skóladagurinn og hann var ... áhugaverður. Ég mætti í skólann haldandi það að ég ætti að skrifa á einhverja pappíra og fara svo heim. Það var allavegana planið og ég átti að byrja í gær. En svo var bara hent mér inní kenslustofuna og ég stóð þarna eins og blaðra. Svo kynnti ég mig á ítölsku og fékk þá nokkur bros :) Fyrsti tíminn var enska þannig ég átti ekki í neinum erfiðleikum með að skilja neitt eða tjá mig þar. Þar á eftir kom saga, ítalska og lög eða Law eins og það heitir hérna og ég SKIL EKKI NEITT !!! Satt að sega er hundleiðinlegt að sitja í 4 tíma og horfa bara á kennarann. Annars þá er ég í stelpubekk og þær eru allar roosalega næs! Þannig skólinn er alveg í plús hjá mér eins og allt annað hérna á Ítalíu :))) Elda amma átti stórafmæli (90 ára) þannig ég og fjölskyldan fórum út að borða á kínverskan veitingarstað og ég smakkaði fullt af mat sem ég hef aldrei einu sinni séð. Það var rosa kósý og mikið hlegið og gaman. Á Föstudaginn fórum við Virgina og Romeo í Duomo di Milano (center of Milano) því ég var að fara í "Italian course" á vegum AFS og það gékk bara ekkert hjá mér heldur, kennarinn talar enga ensku og ég skil ekkert þar heldur :( Þegar tíminn var búin átti ég að taka lestina heim ein, því Virginia og Romeo fóru heim þegar námskeiðið mitt byrjaði. Ég átti að fara til Bisceglie en auðvitað asnaðist ég til þess að fara í vitlausa lest og lenti í Sesto, sem er ekki eitthvað nálægt bænum mínum eða neitt bara aaalveg leengst í burtu í hina áttina. Skildi ekki neitt og hélt ég mundi deyja (ekki allveg en meina.. ). Skoðaði svo bara metro kortið (einsog hefði verið betra að gera bara í byrjun....!!) og fór svo bara aftur uppí aðra metro. Gioele hringdi svo í mig því ég var búin að vera svona 3 tíma á leiðinni frá Duomo heim (það tekur svona 25 mín). Ég sagði honum bara að ég væri í lestinni og væri alveg að koma (sem var ekki rétt) og hann sagðist ætla að bíða eftir mer hja metro í Bisceglie. Fattaði svo seinna að ég var AFTUR í vitlausri lest, það var ekkert mál skipti bara og komst heim á endanum til Bisceglie. Auðvitað biðu allir við matarborðið til þess að hlæga af mér þega ég loksins komst heim og ég var aðalhlátursefnið þetta kvöld. Ég hló bara með þeim. Þetta gerist allavega ekki aftur ! Á Laugardaginn fór ég bara í skólann og svo fórum við aftur í center of Milano og Virgina keypti sér skó. Fórum svo í einhvern tívolígarð rétt hjá húsinu mínu og stelpurnar keyptu sér deig með sykri. Það er alveg gríðarlega vont. Fórum svo á smá pöbbarölt í bænum og komum snemma heim :) Dagurinn í dag var bara rosa rólegur. Vöknuðum, löguðum ti lí húsinu, fórum smá út og núna er ég að fara að borða. Buon appetito !
ps. verð duglegri að taka myndir svo bloggin min verði ekki svona leiðinleg ! ;)
-bjarney
Sunday, September 18, 2011
Monday, September 12, 2011
Il mio primo giorno a Milano
Ég svaf ótrúlega vel í nótt og vaknaði seint. Þegar ég fór niður (herbergið mitt er á fjórðu hæð) var Giole ný búin að elda hádegisverð og við krakkarnir fengum okkur að borða, pasta (haha). Virgina kom heim og við og Romeo kærastinn hennar og besta vinkona hennar Deborah fórum í "Center of Milano" Það var mjög gaman en roosalega heitt. Fórum í fullt af búðum og ég sá "Duomo di Milano" eða Milan Cathedral á ensku. Það er s.s. kyrkja í miðju Milano og hún er roosalega falleg. Hún er með styttu ofaná sem er gerð úr alvöru gulli ! Mér fannst það geðveikt spennandi. Engin bygging í Milano má vera hærri en styttan er.
Fengum okkur svo McDonalds (JEEEHEEEEESSS) og fórum svo að hitta vini Virginiu. Við spiluðum eitthvað spil sem ég hef aldrei séð áður. Strákarnir voru allir mjög nice og höfðu mikinn áhuga á að spjalla við Íslenska stúlku.
Borðuðum svo kvöldmat öll sama og það er líf við matarborðið allir að þræta og hlæga eða sega einhverjar skemmtilega sögur sem ég skil ekkert í því þau tala alltaf ítölsku. Ég kinka bara kolli og hlæ af þeim einstaka sinnum :) Það er samt rosalegt hvað þau borða mikið magn af mat í einu. Alltaf pasta í forrétt og svo eitthvað kjöt og svo fullt af ávöxtum og brauði og kjöt"slæsum" á eftir. Alltaf full eftir pastað en treð ofaní mig rest hehe þetta venst, verð bolti þegar ég kem heim! Þau eru samt öll rosa skemmtilega og yndisleg.
Frábær fyrsti dagur búin í Milano og veit að þeir verða betri ! Bouna notte.
-bjarney
![]() |
| Duomo di Milano |
Fengum okkur svo McDonalds (JEEEHEEEEESSS) og fórum svo að hitta vini Virginiu. Við spiluðum eitthvað spil sem ég hef aldrei séð áður. Strákarnir voru allir mjög nice og höfðu mikinn áhuga á að spjalla við Íslenska stúlku.
| Deborah og Romeo á McDonalds :) |
Frábær fyrsti dagur búin í Milano og veit að þeir verða betri ! Bouna notte.
-bjarney
Benvenuti a casa
Lestarferðin til Milan var rosa lengi að líða og ég vissi ekki alveg hvernig mér átti að líða. Það var allt svona upp og niður hjá mér og ég var svoldið uppstrekkt allan tímann. Ég sat með Guðrúnu, Yuan Zhang og Klöru og Yuan kenndi Klöru á rubik cube og við guðrún fylgdumst spenntar með.
| Yuan og Klara |
Þegar við komum til Milan þá tóku sjálfboðaliðarnir á móti okkur og við fórum beint á hótel sem var rétt hjá og þar biðu fjölskyldurnar okkar eftir okkur. Það voru allir roosalega spenntir og tilfinningin var mjög skrítin. Við fórum öll uppá svið og þegar ég stóð og svipaðist um og sá ég Seve, Maurizio, Miriam, Virginiu og Gioele. Það kom rosa skrítin tilfining þegar ég sá þau en hún var samt góð :) Ég var rosa spennt og með frosið bros alveg þangaði til ég átti að fara uppá svið og sega "Mi chiamo Bjarney. Sono islandese e vado della famiglia Cavalli-Mozzon. " Það gékk mun betur en ég bjóst við og ég sagði ekkkert vitlaust ! Þegar ég var búin að sega þetta fór ég til þeirra og knúsaði þau, ég var rosa feimin en það er alveg búið að lagast núna :) Við fórum í myndatöku og fórum svo bara beint heim. Ég knúsaði Fiore, Tommasso, Sergio og Mariönnu. Miriam sýndi mér húsið og það er geeðveikt! Rosa kósý og mér líður strax vel hérna, allt svo "hómy". Mér finnst þau öll yndisleg og það er rosa gaman að vera með þeim. Þau eru rosa mörg svo það er líf og fjör á heimilinu :)
| Ég og Seve nýkomnar heim. |
-bjarney
L'hotel
| Íslensku skiptinemarnir mínus ég og kristín :) |
Á hótelinu voru 420 skiptinemar frá öllum heiminum og mér fannst það rosa spennandi. Maður var í rosalega "minglandi" stuði og langaði að spjalla og kynnast öllum, því miður var ekki nægilegur tími til þess þar sem ég komum á föstudagskvöldið og fór á sunnudagsmorguninn. Ég náði þó að mingla aðeins og það var mjög fínt. Laugaradagurinn í stuttu máli var morgunmatur, námskeið, hádegismatur (pasta auðvitað), námskeið, kvöldmatur og svo var svona "welcome ceremony" um kvöldið. Kvöldið var mjög kósý og við Íslensku stelpurnar spjölluðum fullt :) Ég vaknaði klukkan 5 á sunnudagsmorguninn og við Lombardy (hérað í Ítalíu) skiptinemarnir lögðum af stað í tveim rútum klukkan 6.
| Welcome ceremony |
-bjarney
Sunday, September 11, 2011
L'arrivo
Ferðalagið til Rómar var langt og erfitt en þrátt fyrir það mjög skemmtilegt. Við hittumst klukkan hálf 7 á föstudagsmorgun á flugvellinum í Keflavík og áttum flug klukkan korter í 8 til Dannmerkur. Þegar við komum í fríhöfnina var allt mjög fljótt að líða og við vorum komnar uppí flugvél áður en við vissum. Það var rosa gaman á fá að kynnast stelpunum aðeins og mér finnst við bara fínasti hópur. Við lentum í DK og sama sagan endurtók sig eiginlega bara nema flugvöllurinn mun ruglingslegri. Flugið til Rómar var jafnlangt og til DK en samt muun lengra. Það var svo mikil spenna í okkur öllum og við vorum svoldið "tens" á leiðinni. Allavega var það upplifunin mín af þessu seinna flugi!
| Þrátt fyrir tensið vorum við samt glaðar :))) |
Við lentum og þar tóku sjálfboðaliðirnir á móti okkur ásamt frökkunum, tælendingunum, kínverjunum, mexíkönunum, skiptinemum frá Ekvador og eitthvað aðeins meira held ég? Það var rosalega heitt og við þurftum að bíða mjög lengi á flugvellinum eftir kínverjunum, sem voru í eitthvað aðeins seinna flugi en við. Við fórum uppí sveitta rútu þar sem allir voru gríðarlega þreittir og fórum á hótel í Róm. Við fórum beint að borða og fengum auðvitað ljúffengt ítalskt pasta ! Við fengum svo herbergi og ég var með Kristínu og Sigurrós, eins og í báðum flugunum okkar ! Hentum dótinu inn í herbergi og svo var sungið og dansað til 11. Fór í langþráða sturtu og svo bara snemma að sofa. Frábær fyrsta kvöld að baki í Róm, Ítalíu.
| Bouna notte Ísland :* |
-bjarney
Addio
![]() |
| Ég og Sesselja mín |
Ég fór að heiman á miðvikudaginn og það var rosalega erfitt. Ég sagði bæ við ættingja mína og vini deginum áður og mömmu þegar ég fór. Ég kvaddi vinkonur mínar fyrir sunnan og pabba, Bigga og Köru á flugvellinum í Keflavík. Það var mjög erfitt að hugsa um að geta ekki fengið knús frá mömmu og pabba í ár, fengið að stríða Köru og Bigga þegar hentaði eða farið í lúgu og kaupa mér Akureyring ef mig langaði. Ég á eftir að sakna allt við Ísland en ég veit að það verður allt þarna þegar ég kem aftur!
![]() |
| Ég og elsku Heiða |
Subscribe to:
Comments (Atom)


