Monday, September 12, 2011

Il mio primo giorno a Milano

Ég svaf ótrúlega vel í nótt og vaknaði seint. Þegar ég fór niður (herbergið mitt er á fjórðu hæð) var Giole ný búin að elda hádegisverð og við krakkarnir fengum okkur að borða, pasta (haha). Virgina kom heim og við og  Romeo kærastinn hennar og besta vinkona hennar Deborah fórum í "Center of Milano" Það var mjög gaman en roosalega heitt. Fórum í fullt af búðum og ég sá "Duomo di Milano" eða Milan Cathedral á ensku. Það er s.s. kyrkja í miðju Milano og hún er roosalega falleg. Hún er með styttu ofaná sem er gerð úr alvöru gulli ! Mér fannst það geðveikt spennandi. Engin bygging í Milano má vera hærri en styttan er.


Duomo di Milano


Fengum okkur svo McDonalds (JEEEHEEEEESSS) og fórum svo að hitta vini Virginiu. Við spiluðum eitthvað spil sem ég hef aldrei séð áður. Strákarnir voru allir mjög nice og höfðu mikinn áhuga á að spjalla við Íslenska stúlku.




Deborah og Romeo á McDonalds :)
Borðuðum svo kvöldmat öll sama og það er líf við matarborðið allir að þræta og hlæga eða sega einhverjar skemmtilega sögur sem ég skil ekkert í því þau tala alltaf ítölsku. Ég kinka bara kolli og hlæ af þeim einstaka sinnum :) Það er samt rosalegt hvað þau borða mikið magn af mat í einu. Alltaf pasta í forrétt og svo eitthvað kjöt og svo fullt af ávöxtum og brauði og kjöt"slæsum" á eftir. Alltaf full eftir pastað en treð ofaní mig rest hehe þetta venst, verð bolti þegar ég kem heim! Þau eru samt öll rosa skemmtilega og yndisleg.


Frábær fyrsti dagur búin í Milano og veit að þeir verða betri ! Bouna notte.


-bjarney

2 comments:

  1. ég fylgist spennt með þér stelpu snót :D

    idaodds.blogspot.com - auðvitað á maður eitt stykki blogg líka ;)

    ReplyDelete
  2. Svo gaman að lesa elsku Bjarneyin mín! Njóttu
    x Hildur

    ReplyDelete