Ciao Ísland ! Vikan er búin að vera frábær. Á miðvikudaginn fór ég með Miriam í "mollið" og það var mjög gaman, keyptum fullt af dóti í skólann og svona. Á fimmtudaginn var fyrsti skóladagurinn og hann var ... áhugaverður. Ég mætti í skólann haldandi það að ég ætti að skrifa á einhverja pappíra og fara svo heim. Það var allavegana planið og ég átti að byrja í gær. En svo var bara hent mér inní kenslustofuna og ég stóð þarna eins og blaðra. Svo kynnti ég mig á ítölsku og fékk þá nokkur bros :) Fyrsti tíminn var enska þannig ég átti ekki í neinum erfiðleikum með að skilja neitt eða tjá mig þar. Þar á eftir kom saga, ítalska og lög eða Law eins og það heitir hérna og ég SKIL EKKI NEITT !!! Satt að sega er hundleiðinlegt að sitja í 4 tíma og horfa bara á kennarann. Annars þá er ég í stelpubekk og þær eru allar roosalega næs! Þannig skólinn er alveg í plús hjá mér eins og allt annað hérna á Ítalíu :))) Elda amma átti stórafmæli (90 ára) þannig ég og fjölskyldan fórum út að borða á kínverskan veitingarstað og ég smakkaði fullt af mat sem ég hef aldrei einu sinni séð. Það var rosa kósý og mikið hlegið og gaman. Á Föstudaginn fórum við Virgina og Romeo í Duomo di Milano (center of Milano) því ég var að fara í "Italian course" á vegum AFS og það gékk bara ekkert hjá mér heldur, kennarinn talar enga ensku og ég skil ekkert þar heldur :( Þegar tíminn var búin átti ég að taka lestina heim ein, því Virginia og Romeo fóru heim þegar námskeiðið mitt byrjaði. Ég átti að fara til Bisceglie en auðvitað asnaðist ég til þess að fara í vitlausa lest og lenti í Sesto, sem er ekki eitthvað nálægt bænum mínum eða neitt bara aaalveg leengst í burtu í hina áttina. Skildi ekki neitt og hélt ég mundi deyja (ekki allveg en meina.. ). Skoðaði svo bara metro kortið (einsog hefði verið betra að gera bara í byrjun....!!) og fór svo bara aftur uppí aðra metro. Gioele hringdi svo í mig því ég var búin að vera svona 3 tíma á leiðinni frá Duomo heim (það tekur svona 25 mín). Ég sagði honum bara að ég væri í lestinni og væri alveg að koma (sem var ekki rétt) og hann sagðist ætla að bíða eftir mer hja metro í Bisceglie. Fattaði svo seinna að ég var AFTUR í vitlausri lest, það var ekkert mál skipti bara og komst heim á endanum til Bisceglie. Auðvitað biðu allir við matarborðið til þess að hlæga af mér þega ég loksins komst heim og ég var aðalhlátursefnið þetta kvöld. Ég hló bara með þeim. Þetta gerist allavega ekki aftur ! Á Laugardaginn fór ég bara í skólann og svo fórum við aftur í center of Milano og Virgina keypti sér skó. Fórum svo í einhvern tívolígarð rétt hjá húsinu mínu og stelpurnar keyptu sér deig með sykri. Það er alveg gríðarlega vont. Fórum svo á smá pöbbarölt í bænum og komum snemma heim :) Dagurinn í dag var bara rosa rólegur. Vöknuðum, löguðum ti lí húsinu, fórum smá út og núna er ég að fara að borða. Buon appetito !
ps. verð duglegri að taka myndir svo bloggin min verði ekki svona leiðinleg ! ;)
-bjarney
No comments:
Post a Comment