Sunday, September 11, 2011

Addio

Ég og Sesselja mín 


Ég fór að heiman á miðvikudaginn og það var rosalega erfitt. Ég sagði bæ við ættingja mína og vini deginum áður og mömmu þegar ég fór.  Ég kvaddi vinkonur mínar fyrir sunnan og pabba, Bigga og Köru á flugvellinum í Keflavík. Það var mjög erfitt að hugsa um að geta ekki fengið knús frá mömmu og pabba í ár, fengið að stríða Köru og Bigga þegar hentaði eða farið í lúgu og kaupa mér Akureyring ef mig langaði. Ég á eftir að sakna allt við Ísland en ég veit að það verður allt þarna þegar ég kem aftur! 
Ég og elsku Heiða 
-bjarney

No comments:

Post a Comment