| Þrátt fyrir tensið vorum við samt glaðar :))) |
Við lentum og þar tóku sjálfboðaliðirnir á móti okkur ásamt frökkunum, tælendingunum, kínverjunum, mexíkönunum, skiptinemum frá Ekvador og eitthvað aðeins meira held ég? Það var rosalega heitt og við þurftum að bíða mjög lengi á flugvellinum eftir kínverjunum, sem voru í eitthvað aðeins seinna flugi en við. Við fórum uppí sveitta rútu þar sem allir voru gríðarlega þreittir og fórum á hótel í Róm. Við fórum beint að borða og fengum auðvitað ljúffengt ítalskt pasta ! Við fengum svo herbergi og ég var með Kristínu og Sigurrós, eins og í báðum flugunum okkar ! Hentum dótinu inn í herbergi og svo var sungið og dansað til 11. Fór í langþráða sturtu og svo bara snemma að sofa. Frábær fyrsta kvöld að baki í Róm, Ítalíu.
| Bouna notte Ísland :* |
-bjarney
No comments:
Post a Comment