| Yuan og Klara |
Þegar við komum til Milan þá tóku sjálfboðaliðarnir á móti okkur og við fórum beint á hótel sem var rétt hjá og þar biðu fjölskyldurnar okkar eftir okkur. Það voru allir roosalega spenntir og tilfinningin var mjög skrítin. Við fórum öll uppá svið og þegar ég stóð og svipaðist um og sá ég Seve, Maurizio, Miriam, Virginiu og Gioele. Það kom rosa skrítin tilfining þegar ég sá þau en hún var samt góð :) Ég var rosa spennt og með frosið bros alveg þangaði til ég átti að fara uppá svið og sega "Mi chiamo Bjarney. Sono islandese e vado della famiglia Cavalli-Mozzon. " Það gékk mun betur en ég bjóst við og ég sagði ekkkert vitlaust ! Þegar ég var búin að sega þetta fór ég til þeirra og knúsaði þau, ég var rosa feimin en það er alveg búið að lagast núna :) Við fórum í myndatöku og fórum svo bara beint heim. Ég knúsaði Fiore, Tommasso, Sergio og Mariönnu. Miriam sýndi mér húsið og það er geeðveikt! Rosa kósý og mér líður strax vel hérna, allt svo "hómy". Mér finnst þau öll yndisleg og það er rosa gaman að vera með þeim. Þau eru rosa mörg svo það er líf og fjör á heimilinu :)
| Ég og Seve nýkomnar heim. |
-bjarney
No comments:
Post a Comment