Thursday, December 29, 2011

Natale in Italia

CIAO TUTTI !

Í dag er 29. desember og ég sit í sófanum og horfi á Lie to Me, ég er ein heima í fyrsta skiptið held ég. Mér finnst það stórmerkilegt, auðvitað er amma hér, hundurinn, kettirnir og fuglarnir þannig það er ekki beint allt tómt en þetta gerist ALDREI!  Ástæðan er sú að Host mamma, Blóm, Gioe og Tommi eru í einhverjum bæ að vinna yfir nýárs. Virgi, Ser og Miriam fóru til Milano og Host pabbi er bara í vinnunni, ég er of löt til að standa upp úr sófanum þannig ég ætla bara að vera heima í dag.

Jólin hérna voru yndisleg, ég skemmti mér konunglega og var með frosið bros alveg þangað til mamma hringdi frá jólaboðinu heima hjá ömmu hröbbu.
24. desember var svosem ekkert merkilegur, ég var meira en minna leið allann daginn og ég gerði þau mistök að vera alltaf að líta á klukkuna og hugsa um hvað ég hefði verið að gera ef ég væri heima. heimsk.
En Dagurinn var samt góður, við vöknuðum öll snemma og byrjuðum að búa til hádegismatinn saman. Bara venjulegur hádegisverður. 24. desember er kallaður "preparazione del giorno" eða undirbúnings dagur. Við elduðum og bökuðum allann daginn og það var alveg brjálað að gera. Frekar erfittt að reyna að gera eitthvað að viti þegar það eru 10 manneskjur í eldhúsinu og aallir útum allt. Um kvöldið borðuðum við alveg geðveikt góðann lax og fórum svo bara snemma í háttinn, allir spenntir fyrir morgundeginum.
Venjulegur kvöldverður á ítalíu 24. des.
Næstum allir pakkarnir 


25. kom Mari stóra systir hingað klukkan 8 og ákvað að hlaupa upp og niður út og inn öskranidi "ÞAÐ ERU JÓL, VAKNIÐI, PAKKARNIR GLEÐILEG JÓL", nema náttúrulega á ítölsku. Minnti mig á amerísku bíómyndirnar þegar börnin hoppa í rúmi foreldra sinna 25. des. 
Við fórum öll niður og allir sátust niður í stofunni. Allir fengu sína pakka í hendurnar og svo bara bara sagt einn, tveir og þrír og þá var bara rifið allt upp ! Frekar fyndið en gaman ! Ég fékk ilmvatn, fullt af bolum, pils, nokkur pör af eyrnalokkum, varaliti, gollu, eyrnaskjól, pening, veski, tösku og eitthvað meira man ekki. Var rosa sátt með allt og allir voru líka rosa sáttir með gjafirnar frá mér :)
við borðuðum morgunmat og svo fóru allir upp í sturtu og til að gera sig fína. Allar sturtur í notkun þannig vatnið var ískallt! Alveg æðislegt. Samt bara fyndið. Þegar við vorum ready fórum við niður til þess að elda hádegismatinn og gera allt ready, ég lagði fínt á borð og gerði fiskinn. 
Matarborðið ready
Klukkan 2 voru allir komnir og allt var tilbúið. Við vorum 15 hérna heima að borða. Bara fjölskyldan og svo komu líka 3 fatlaðir :) Það var borðað alveg ALLT of mikið, ég virkilega hélt að ég væri að deyja eftir síðasta disk. Fyrst var brauð og snakk og fullt af salati og reyktum laxi og osti og allt það. Svo var auðvitað pasta, graskera.. geeeðveikt gott. Svo var fiskur, lax aftur.. eelska lax, svo var lamb með fullt af góðgæti og svo voru kökur og nammi og kex og allt. 
Allt í allt voru þetta 5 máltíðir. Þetta var allt aaaaagalega gott en allt of mikið. 
Allir fullir sen samt spenntir fyrir risakökunni
svooo góð
Eftir þetta var spilað Alias. Ég var alveg hræðinleg í því í alla staði, það gékk samt fínt og mitt lið vann :) Við spiluðum líka bingó, það er kallað Tombola hér sem mér finnst bara ógeðslega fyndið. Svo var gert matinn ready og svo var borðað. Kvöldmáltíðin var eiginlega bara alveg eins og hádegismaturinn nema öðruvísi salat og pasa og fiskur og það var kalkúnn í staðinn fyrir lamb. Eftir kvöldmat settu strákarnir hvítt teppi uppá vegg, ég var bara hvaað eru þið að gera. Eina sem ég fékk í svar var karíókí. Við sungum fullt af ítölskum lögum og enskum og það var alveg pottþétt eitthvað nýtt og rosa gaman :) 
26. desember var rosalega kósý bara. Við vöknuðum snemma og fórum öll í göngutúr við einhverja á svona hálftíma í burtu. 10 kílómetra löbbuðum við, stoppuðum samt smá á milli við ánna til þess að fletja kellingar og njóta útsýnisins. 
Allir saman nema seve og Gioe 

Sergio að kenna mer að fletja kellingar 
Jólin voru æðisleg og ég get ekki beðið eftir gamlárs. Það kemur blogg um það sem fyrst. 


Þar til næst .. CIAOOOO

-bjarney

Tuesday, December 13, 2011

Ciao cara Islanda !

Hæ elsku Ísland. Ætlaði bara aðeins að update-a ykkur :)

ókei, síðustu vikur hafa verið mjög ánægjulegar. Ég er rosalega lítið heima og er búin að vera að skoða borgina mikið, ég er alveg ástfangin af henni og ég elska að lifa hérna. Allt of mikið til þess að skoða! 
Byggingin !

Um daginn fór ég á stærsta markað sem ég hef séð ! Það var rosalegt ! Það voru s.s. fjórar risa byggingar og 10 svæði.          


Svæði 1-5 voru Ítalía. Og það var bara bókstaflega allar borgir á Ítalíu og allt sem því tengist. 
ítalía
Ítalía


Evrópa
Hálft svæði 5 og svæði 7 var Evrópa, þrátt fyrir það var ekki ögn að finna frá neitt af norðurlöndunum! Ég var alveg þvílíkt 
hneyksluð. Þar mátti finna Frakkland, Spán, Sviss, Austurríki, Portúgal.... o.s.frv. 
Og svæði 6 og 10 voru bara "paesi del mondo" eða lönd heimsins. Mér fannst það mest spennandi og eyddi mestum mínum tíma þar. Afríka, Indland, Mexíkó, USA, Perú.. og fuuuullt fleira. 
Við skoðuðum aallt og það tók heavy langann tíma! Borðuðum svo í Cuba, baunir og hrísgrón fyrir 15 evrur !!! Ágætis matur en ég hef aldrei séð svona mikið eftir pening! 

Keypti líka nóg af jólagjöfum og svona, það var rosalega gaman en var þvílíkt þreytt eftir daginn ! 



Stelpurnar líka þreyttar 



Ég og Helena fórum líka í miðbæinn og reyndum að finna eitthvað meira af jólagjöfum, það var rosa kósý og allt skreitt og gaman :) 


Jólatréið komið upp ! :) 
Um daginn ákváðum við stelpurnar líka að gera smá jólabakstur. Við hittumst allar heima hjá Feli, og þar sem hún er frá Þýskalandi gerðum við þýskar jólasmákökur. 
Ég og Helena gerðum þessar.
Borðuðum líka allar kvöldmat með henni og host-fjölskyldunni hennar. Feli og Eva, ákváðu þá að nýta tækifærið og búa til eitthvað þýskt, þar sem Eva er líka frá Þýskalandi. Ég hef borðað margt skrítið en þetta sló öllu við sem kvöldmatur. Þetta var svona sætt, slímugt, soðið og með sultu inní! Það bragðaðist svo sem ágætlega en var ekki að búast við einhverju svona í kvöldmatinn. 

Svo um daginn fórum við líka á skauta! Skemmti mér all svaðalega vel þann dag. 
Allur hópurinn utan við Lizzy, þar sem hún var einhverstaðar
með nýja ríka mexíkóska kæró ! 
Fórum svo eftir á öll saman út að borða og svona kósý ! :)


xxo -bjarney

Monday, November 28, 2011

Bergamo !

Á leið í sporvagninn
Ákvað að skella einu litlu í víðbót fyrst ég er nú í stuði í dag ! :)

Alrightí, í gær sunnudaginn 27. Nóv. fórum við í litla borg aðeins norðar en Milan sem heitir Bergamo. Við fórum 6 sama. Ég, Host mamma Seve, host systkini mín Tommaso, Gioele, og Fiore, og svo kærastan hans Gioele Elisa. Fórum bara beint eftir hádegismat og það tók svona klukkutíma að keyra. Það var allt troðið þarna og þegar við komum var þvílíkt vesen að finna bílastæði en það tókst nú á endanum. Allir í Bergamo komnir í þvílíkt jólastuð og allt skreytt og fullt af jólamörkuðum og jólanammi og öllu því tengt. Við gengum um alla borgina og enduðum hjá einhverjum svona pínulitlum sporvagni. Keyptu voru miðar og svo allir inní sporvagninn. Sporvagninn fór s.s með okkur upp, og ég held að þetta sé eitthvað svona önnur lítil borg í hinni borginni sem heitir s.s Cittá Atla. Borgin er 1 milljón og 400 ára gömul og ótrúlega falleg .. var mað hökuna í gólfina meira en helminginn af tímanum. 

Útsýnið úr hinni borginni



Fórum í kirkjuna þarna og það var bara bókstaflega það fallegast sem ég hef séð á ævi minni. Hugsaði allann tímann hvað mamma hefði notið sín þarna!


Gioele- hostbróðir, Elisa-kærastan hans, Tommi- hostbróðir, ég og
Fiore (ég kalla hana Blóm) -hostsystir mín :)))
Á kaffihúsi í Bergamo ! 
 Ferðin var roosa kósý og ég skemmti mér vel. Fórum á kaffihús og löbbuðum um allt og keyptum nammi og spjölluðum og bara rosa gaman :) 









Þangað til næst -bjarney 


ps. lofa að bíða ekki í mánuð þangað til ég blogga næst !!!

La mia Vita, é bella.

Hæ elsku ísland ! Sorry ég er ömurleg í að blogga ég veit. Það er bara svooo leiðinlegt ! Er samt að gera þetta, bara fyrir ykkur ! 


Okei jæja.. Ég er búin að búa á Ítalíu í 12 vikur núna. Búið að vera óótrúlega fljótt að líða og ég veit að ég verð komin heim áður en ég veit af. Þess vegna er ég að reyna að njóta mín sem best við hvert tækifæri. 


Ég er búin að eignast ótrúlegustu vini hérna, fjölskyldan mín er yndisleg og ég elska þau öll, undantekningarlaust. Ég er hamingjusöm :) 


Ég elska Milan, mér finnst hún rosa falleg borg og ég veit að ég er ekki einu sinni búin að skoa 1/10 af henni, planið er að drífa í því að explora eins og ég get. Vikurnar mínar eru samt svo pakkaðar og það er alltaf eitthvað sem ég þarf að gera eða sem ég er búin að plana þannig það er erfitt fyrir mig að reyna að finna frítíma. 
Elska Milan að nóttu !
                                
Ég er í skóla frá 8-13 alla virka daga nema á fimmt, þá er ég frá 8-15. Svo er ég á laugardögun frá 8-12. Skoðun mín á þessu skólasystemi er ágæt. Búin klukkan 1 og þú hefur allann daginn frammundan og hefur tíma til þess að gera það sem að þú villt, öfugt við á íslandi þar sem þú kemur heim úr skólanum, ferð í sturtu og þá er kvöldmatur. En þrátt fyrir þetta, þá ÞARF ég mína 2 frídaga í viku! Stundaskráin mín er samt bara mjög fín. Fékk persónulega stundaskrá sem ég var rosa sátt með. Ég er í þriðja bekk H, sem er ágætt.. þær, já bara þær, eru ágætar að sínu leiti :) Ein stelpa frá Írlandi er með okkur líka og ég er alltaf með henni bara. Ekki gott því við tölum bara ensku! Hún er samt að fara heim núna í desember þannig ég verð að fara að drífa mig í að tala meiri ítölsku. Ég er að taka ensku með 5. bekk A og það er bara fínt.. allir voða næs þar og svo er ég að taka frönsku með 2. bekk G sem er rosa fínt. 


Mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga fer ég á ítölskunámskeið. Tvo tíma í senn. Mánudaga og fimmtudaga er ég í skólanum á fríu námskeiði sem fjölskyldan mín skráði mig í, sem er ágætt.. fullt af fólki frá pakistan og moldavíu.. mjög skruatleg öll sömul. OOg á miðvikudögunm og föstudögum er ég á námskeiði í Piazza Doumo með Intercultura (AFS), sem mér finnst bara ótrúlega gaman því við erum alveg frábær hópur og alltaf hlægandi og brosandi og stríðandi. 




Koh, frá tælandi og Feli frá þýskalandi 


Eva frá þýskalandi


Klara, tékkland, Cami frá argentínu og Maija frá lettlandi :)
 Við allir krakkarnir sem komu með AFS til Milan erum 11 og við erum mjög dugleg í að hittast og gera eitthvað saman, Og það er alltaf jafn gaman:) Mér finnst líka óótrúlega fyndið þegar við erum allur hópurinn saman úti að borða eða eitthvað því líkt og það er spurt okkur hvaðan við erum. Það er bara ísland, dannmörk, þýskaland, finnland, argentína, thailand, lettland, tékkland, ameríku.. o.s.fv. Fer eftir ýmsu. Kemur alltaf sami svipur á fólk, bara, hvernig í andskotanum þekkist þið!? En nóg með það. 
Miriam, dk og Laura frá argentínu 


bjarney og helena 


Guðrún og Klara, frá tékklandi 


Miriam sæta
Í sambandi við hádegismat núna þá borða ég hann heima þegar ég get, þar sem ég er blönk.. hver bjóst ekki við því ??? .. en það er bara fínt, bara MEIRA pasta í staðin fyrir Burger King eða McDonalds!  


Ég og Helena
Ég eyði mestum mínum frítíma með Helenu, frá Finnlandi, hún er alveg yndisleg og við eigum allt sameiginlegt, og Miriam, frá Dannmörku. Lizzy, frá ameríku er líka þarna rétt á eftir og Feli frá Þýskalandi. Við förum oftast á uppáhalds kaffihúsið okkar, Arnold Coffee, sem er Amrískt og ótrúlega kaldhæðnislegt þar sem við allar kusum að koma til Ítalíu í staðin fyrir að fara til Ameríku. Það er samt rosa kósý, mér líður smá eins og ég sé á kaffihúsi heima á íslandi. 
                 


Ég borða alltaf Kvöldmat heima með fjölskyldunni á virkum dögum, og þar inní eru auðvitað föstudagar! 


Á laugardögum fer ég alltaf út og það er alltaf jafn gaman. Utan við að það er ekkert grín hvað ítalir eru miklir perrar, þurfti að slá einn um daginn! Ekkert grín..


Ég og Miriam 
Stelpurnar hressar að taka fystu lestina eftir gott kvöld.
Ég elska sunnudaga. Við vöknum öll klukkan 11 og borðum morgunmat saman. Allir geðveikt myglaðir og þau eldri alltaf þunn, ógeðslega fyndið. Svo þrífa allir húsið, allir með sín húsverk, var örugglega búin að deila því með ykkur.. man ekki, allavegan þá þrífa ég alla 3 stigana. Svo þegar allir eru búnir með sitt fara allir niður og hjálpast að við að elda hádegismat. Strákarnir setja Bob Marley í tækið og allir eru syngjandi og dansandi og brosandi og skerandi og eldandi. Alltaf stórt bros á mér þá :D. 


Fjölskyldan mín er alltaf að byðja mig um að elda eitthvað íslenskt handa þeim. Ég er alveg til í það er vandamálið er að ég er enginn kokkur, satt að sega er ég alveg hræðinlegur kokkur!! Þrátt fyrir það hef ég nú getað fundið mig í eldhúsinu við bakstur á ýmsu þannig að um daginn bakaði ég í fyrsta sinn pönnukökur ! Það er náttúrulega engin pönnukökupanna hérna þannig ég átti í svolitlum erfðileikum með baksturinn! en það gékk samt fínt og allir fengu íslenska pönnukökur með Nutella. Þar sem að enginn rjómi var til eða rabbabarasulta! Ég var himinlifandi með útkomu fyrsta pönnukökubakstursins míns. Næst á dagskrá er hjónabandasæla ! Það verður sko skrautlegt. 


- bjarney


Ps. þið megið búast við videóbloggi einhvertíman á næstunni :)))

Wednesday, October 26, 2011

Aprica camp!

Ciao Ísland ! Ætla að byrja á því að afsaka lélega framistöðu mína á blogginu, er ekki búin að vera nógu dugleg! Ég hef ákveðiði að deila með ykkur síðustu helgi :) 
Hún byrjaði sem sagt á fimmtudagsmorgni þar sem ég tók strætó og svo metro á "Centrale Milano" sem er ein af mörgum lestarstöðum í Milan. Ég hitti alla krakkana og svo fórum við á Börger King.... að vana. Átum á okkur göt og svo lögðum við af stað til Apricu, sem er s.s lítill fjallabær í Lombardiu :) Rosa fjör í rútunni og við vorum mun fleiri heldur en ég bjóst við. Rútan var á 2 hæðum og ég held að við höfum verið eitthvað í kringum 80 manns. Þegar við komum á þriggja stjörnu hótelið okkar var raðað í herbergi og ég lenti með Morgan (Nýja Sjáland), Anne (Þýskaland), einhver frá dóminíska lýðveldinu og svo ein krúttla sem ég man EKKI hvað heitir en er frá Gvatemala.


Morgan (Nýja sjáland) og ég. Herbergisfélagar! 
 Helgin var svo öll eiginlega bara sama prógrammið, vakna klukkan hálf átta, morgunmatur á milli átta og níu. "Orientation" á milli morgun- og hádegismats. Svo var svona smá frítími til þess að mingla aðeins. Við krakkarnir frá norðurlöndunum náðum held ég best saman, ekkert skrítið. Mér fynnst þau öll rosa frábær :) 


Vorum ekki fleiri ! Helena (Finnland), Miriam (Dannmörk), Ég, Carolina (finnland),
Petja (finnland), Guðrún (Ísland), Thea og Birgitta (Noregur) :)))




Svo var kvöldmatur og yfirleitt einhverjir leikir á kvöldin, sem ég hefði nú reyndar ekkert gaman af. Á laugardaginn var nú samt göngutúr um þorpið. 




Guðrún var með


Á laugardagsköldið var svo hitt stórfenglega "Talent show"... fékk 8-pack eftir það kvöld, alveg klárlega. Eins og kannski sum ykkar hafa séð ákváðum ég og Guðrún að taka Latibæ (gríðarlega góð hugmynd). Þetta var nú ekki stoltasta stund lífs mín en þið getið séð það á profile-inum mínum á facebook! 
Allt tilbúið ! 
Við krakkarnir stálumst samt þarna inn á milli til að fara að skoða hestana ! :) 




Ég skemmti mér ótrúlega vel, alveg mun betur en ég bjóst við og kynntist krökkunum öllum mun betur :) Langar að setja fullt af fleiri myndum en klukkan er orðin alltof margt og mig langar bara í háttinn ! Svo Bouna notte, 
- bjarney

Friday, October 7, 2011

Manifestazione

Ég fór ekki í skólann í dag (jeess) því það var "demonstration" í Milan. Allir sem eru í "highschool" slepptu skóla og fóru í Milan í staðinn. Við mættum um 10 leitið og þá var allt byrjað. Alveg trooðið af unglingum, án gríns örugglega fleiri heldur en búa á Íslandi, og allir með tvær línur í andlitinu og "pís" merkið á enninu! Lögreglan leiddi og og rak risalestina svo þetta var friðsamlegt. Það var samt rosalegur hávaði og ég hef held ég aldrei séð svona mikið af unglinum áður. Það var sendibíll eiginlega fremst sem var með risa hátalara og tónlist í botni alla leiðina, allir syngjandi og öskrandi eitthvað á ítölsku. Skildi ekki neitt en ég veit að það var tekið upp nokkuð oft að öskra "piece of shit" á ítölsku og allir tóku alltaf undir. Það voru allir alltaf að týnast og ég týndi krökkunum svona 5 sinnum sem var alveg óþolandi, en samt allt í lagi. Við löbbuðum þvilíkt langt og á meðan því stóð var öll umferð alveg stopp. Við gengum á götum og ljósum og hringtorgum og ef ég leit til hliðar sá ég bara einhverja kássu af bílum að reyna að komast eitthvað, ítalar taka það mjög oft upp að reyna að troða sér hvert sem þeir komast en í þetta skipti virkaði það ekki! Mér fannst alveg geðveikt gaman og ég mæti pottþétt næst!


Reyndu að finna mig! 


-bjarney

Flashmob

Síðasta laugardag (1.Okt) fór eg ekki í skólann því það var Intecultura (AFS) day í Milan. Allir skiptinemarnir frá norðurhluta Ítalíu komu og það var rosa fjör. Ég byrjaði daginn klukkan 9 þegar ég tók metro til Cadorna og þar hitti ég Miriam (dannmörk) og Evu (þýskaland). Við fórum í aðra metro og á aðal lestarstöðina í Milan. Þar komu allir hinir skiptinemarnir og við ætluðum að hitta þau og eyða deginum með þeim. Við mættum þar klukkan hálf ellefu og þau áttu að koma með lestum klukkan ellefu. Ég var rosalega svöng þannig við fórum á Burger King og ég fékk mér einn stórann og ljúffengann hamborgara. Klukkunni vantaði fimm mínútur í ellefu þegar ég var búin og fórum við þá að lestarteinunum og biðum spenntar. Við sáum þó enga sjálfboðaliða merkta AFS neinstaðar sem okkur fannst roosalega skrítið. Klukkan tíu mínútur yfir ellefu fórum við eitthvað að vafra um og reyna að finna hóp af fólki í gulum bolum(AFS bolirnir). Auðvitað fundum við ekki neitt né neinn, nema reyndar Klöru (Tékkland) sem ætlaði að koma með okkur. Við 4 dönduluðumst þarna á lestarstöðinn í svona 20 mín og svo fórum við að spurja alla hvort þau hafi séð hóp af fólki í gulum bolum, enginn kvaðst hafa séð neitt því líkt. Við gáfumst upp og ákváðum að fara til Duomo. Miriam hringdi svo í "host" mömmu sína og bað hana að finna út hvar allir væru. Nýkomnar til Duomo og þá fékk Miriam símtal frá mömmu sinni sem sagði okkur að fara aftur í Metro, frábært. Við fundum staðinn á endanum og hópinn, og auðvitað var enginn kominn í gula bolinn sinn! Við fórum í fullt af leikjum og gengum í gegnum alla "center of Milan". Það var mjög gaman að fá að hitta alla krakkana aftur og kynnast þeim betur. Guðrún Elín var þarna og mér fannst bara geeðveikt skrítið að vera að tala íslensku eitthvað. Það eiginlnega passaði ekki og ég byrjaði oft að tala ensku við hana.. sem var eginlega bara meira skrítið haha. Þegar við komum að Duomo keyptu allir sér nesti og við fórum í "The park" og borðuðum þar. Það var rosa kósý og mikið spjallað og hlegið og gaman. Yuan (rubix cube) kom þar og fór að sega kínverska brandara sem mér fannst bara geðveikslega fyndnir og ég gat ekki hætt að hlæja, ég með minn asnahúmor (Einu sinni var banani að labba, og svo bara alltíeinu rann hann). Við löbbuðum svo öll að Leonardo Da Vinci styttunni og biðum þar eftir fleiri skiptinemum og sjálfboðaliðum. Áður en ég vissi vorum við orðin alveg grííðarlega mörg og klukkan 4 fórum við öll í gulu bolina okkar og lögðum af stað á torgið hjá Duomo.

Alveg að verða tilbúin !


Klukkan korter yfir fjögur byrjaði "The flashmob", sem var eiginlega aðalástæða dagsins. Það var rosalega random og fyndið. Við breiddum aðeins úr okkur og við vorum svo mörg að við fylltum torgið. Þegar allir heyrðu fyrsta flautið frusu ALLIR á torginu, skipti ekki máli hvernig stöðu þú varst í þú varst alveg frosin. Þetta stóð yfir í eina og hálfa mínútu og það var geðveikt fyndið að sjá viðbrögð vegfarenda um torgið. Enginn þorði að ganga í gegn og fólk stóð bara og starði undrandi augum. Við annað flaut tóku allir upp bók á sínu tungumáli og byrjuðu að lesa. Þetta stóð yfir í 2 mínútur og það var svooo mikill hávaði að ég heyrði ekki í sjálfri mér lesa. Mér fannst þetta ógeðslega fyndið og var með frosið bros allann tímann, sérstaklega af því allt fólkið vissi ekkert hvað var í gangi og starði bara með opinn munn niðrá jörð. Þegar við heyrðum 3 flautið hættum við að lesa og allir öskruðu Ciao Praga ! Ástæðan fyrir því var sú að AFS um allann heim er að gera myndband af öllum borgum sem bjóða uppá skiptinemadvalir. Prag var næsta borg til þess að gera flashmob og þessvegna öskruðum við Praga. Prag segir svo hæ einhver borg, á þeirra tungumáli og svo gengur það hringinn þar til einhver segir hæ Milano. Mjög sniðugt. Eftir þetta fórum við í leik sem allir þekktu síðan á "The arrival camp" og það var líka geðveikt fyndið. Allir standa s.s. í línum og þetta voru ekkert eitthvað nokkrar línur, meira svona 50! Og sjálfboðaliði stendur fyrir framan hverja línu og þau öskra öll, left, left, left right left nokkrum sinnum og svo byrjar það yfirleitt á LET ME SEE YOU DO THE FUNKY CHIKEN, og þá segum við öll WHAT DID YOU SAY?  Það kemur 3 og svo gerum við öll skrítið hljóð og leikum kjúklinga! Svo er líka Frankenstein, Paris Hilton, Superman, Danza kuduro og svo fr.v. Ógeðslega fyndið og gaman. Svo var myndataka.
   
                                                                  Sést oggupons í hausinná mér hérna !
                                                 

    Við Milano krakkarnir fórum á kaffihús og svo var bara haldið heim. Þetta var frábært laugardagur og eg get ekki beðið eftir "six week camp" !


-bjarney

Sunday, September 18, 2011

Tutte le grandi

Ciao Ísland ! Vikan er búin að vera frábær. Á miðvikudaginn fór ég með Miriam í "mollið" og það var mjög gaman, keyptum fullt af dóti í skólann og svona. Á fimmtudaginn var fyrsti skóladagurinn og hann var ... áhugaverður. Ég mætti í skólann haldandi það að ég ætti að skrifa á einhverja pappíra og fara svo heim. Það var allavegana planið og ég átti að byrja í gær. En svo var bara hent mér inní kenslustofuna og ég stóð þarna eins og blaðra. Svo kynnti ég mig á ítölsku og fékk þá nokkur bros :) Fyrsti tíminn var enska þannig ég átti ekki í neinum erfiðleikum með að skilja neitt eða tjá mig þar. Þar á eftir kom saga, ítalska og lög eða Law eins og það heitir hérna og ég SKIL EKKI NEITT !!! Satt að sega er hundleiðinlegt að sitja í 4 tíma og horfa bara á kennarann. Annars þá er ég í stelpubekk og þær eru allar roosalega næs! Þannig skólinn er alveg í plús hjá mér eins og allt annað hérna á Ítalíu :))) Elda amma átti stórafmæli (90 ára) þannig ég og fjölskyldan fórum út að borða á kínverskan veitingarstað og ég smakkaði fullt af mat sem ég hef aldrei einu sinni séð. Það var rosa kósý og mikið hlegið og gaman. Á Föstudaginn fórum við Virgina og Romeo í Duomo di Milano (center of Milano) því ég var að fara í "Italian course" á vegum AFS og það gékk bara ekkert hjá mér heldur, kennarinn talar enga ensku og ég skil ekkert þar heldur :(  Þegar tíminn var búin átti ég að taka lestina heim ein, því Virginia og Romeo fóru heim þegar námskeiðið mitt byrjaði. Ég átti að fara til Bisceglie en auðvitað asnaðist ég til þess að fara í vitlausa lest og lenti í Sesto, sem er ekki eitthvað nálægt bænum mínum eða neitt bara aaalveg leengst í burtu í hina áttina. Skildi ekki neitt og hélt ég mundi deyja (ekki allveg en meina.. ). Skoðaði svo bara metro kortið (einsog hefði verið betra að gera bara í byrjun....!!) og fór svo bara aftur uppí aðra metro. Gioele hringdi svo í mig því ég var búin að vera svona 3 tíma á leiðinni frá Duomo heim (það tekur svona 25 mín). Ég sagði honum bara að ég væri í lestinni og væri alveg að koma (sem var ekki rétt) og hann sagðist ætla að bíða eftir mer hja metro í Bisceglie. Fattaði svo seinna að ég var AFTUR í vitlausri lest, það var ekkert mál skipti bara og komst heim á endanum til Bisceglie. Auðvitað biðu allir við matarborðið til þess að hlæga af mér þega ég loksins komst  heim og ég var aðalhlátursefnið þetta kvöld. Ég hló bara með þeim. Þetta gerist allavega ekki aftur ! Á Laugardaginn fór ég bara í skólann og svo fórum við aftur í center of Milano og Virgina keypti sér skó. Fórum svo í einhvern tívolígarð rétt hjá húsinu mínu og stelpurnar keyptu sér deig með sykri. Það er alveg gríðarlega  vont. Fórum svo á smá pöbbarölt í bænum og komum snemma heim :) Dagurinn í dag var bara rosa rólegur. Vöknuðum, löguðum ti lí húsinu, fórum smá út og núna er ég að fara að borða. Buon appetito !


ps. verð duglegri að taka myndir svo bloggin min verði ekki svona leiðinleg ! ;)


-bjarney

Monday, September 12, 2011

Il mio primo giorno a Milano

Ég svaf ótrúlega vel í nótt og vaknaði seint. Þegar ég fór niður (herbergið mitt er á fjórðu hæð) var Giole ný búin að elda hádegisverð og við krakkarnir fengum okkur að borða, pasta (haha). Virgina kom heim og við og  Romeo kærastinn hennar og besta vinkona hennar Deborah fórum í "Center of Milano" Það var mjög gaman en roosalega heitt. Fórum í fullt af búðum og ég sá "Duomo di Milano" eða Milan Cathedral á ensku. Það er s.s. kyrkja í miðju Milano og hún er roosalega falleg. Hún er með styttu ofaná sem er gerð úr alvöru gulli ! Mér fannst það geðveikt spennandi. Engin bygging í Milano má vera hærri en styttan er.


Duomo di Milano


Fengum okkur svo McDonalds (JEEEHEEEEESSS) og fórum svo að hitta vini Virginiu. Við spiluðum eitthvað spil sem ég hef aldrei séð áður. Strákarnir voru allir mjög nice og höfðu mikinn áhuga á að spjalla við Íslenska stúlku.




Deborah og Romeo á McDonalds :)
Borðuðum svo kvöldmat öll sama og það er líf við matarborðið allir að þræta og hlæga eða sega einhverjar skemmtilega sögur sem ég skil ekkert í því þau tala alltaf ítölsku. Ég kinka bara kolli og hlæ af þeim einstaka sinnum :) Það er samt rosalegt hvað þau borða mikið magn af mat í einu. Alltaf pasta í forrétt og svo eitthvað kjöt og svo fullt af ávöxtum og brauði og kjöt"slæsum" á eftir. Alltaf full eftir pastað en treð ofaní mig rest hehe þetta venst, verð bolti þegar ég kem heim! Þau eru samt öll rosa skemmtilega og yndisleg.


Frábær fyrsti dagur búin í Milano og veit að þeir verða betri ! Bouna notte.


-bjarney

Benvenuti a casa

Lestarferðin til Milan var rosa lengi að líða og ég vissi ekki alveg hvernig mér átti að líða. Það var allt svona upp og niður hjá mér og ég var svoldið uppstrekkt allan tímann. Ég sat með Guðrúnu, Yuan Zhang og Klöru og Yuan kenndi Klöru á rubik cube og við guðrún fylgdumst spenntar með.
Yuan og Klara

 Þegar við komum til Milan þá tóku sjálfboðaliðarnir á móti okkur og við fórum beint á hótel sem var rétt hjá og þar biðu fjölskyldurnar okkar eftir okkur. Það voru allir roosalega spenntir og tilfinningin var mjög skrítin. Við fórum öll uppá svið og þegar ég stóð og svipaðist um og sá ég Seve, Maurizio, Miriam, Virginiu og Gioele. Það kom rosa skrítin tilfining þegar ég sá þau en hún var samt góð :) Ég var rosa spennt og með frosið bros alveg þangaði til ég átti að fara uppá svið og sega "Mi chiamo Bjarney. Sono islandese e vado della famiglia Cavalli-Mozzon. " Það gékk mun betur en ég bjóst við og ég sagði ekkkert vitlaust ! Þegar ég var búin að sega þetta fór ég til þeirra og knúsaði þau, ég var rosa feimin en það er alveg búið að lagast núna :) Við fórum í myndatöku og fórum svo bara beint heim. Ég knúsaði Fiore, Tommasso, Sergio og Mariönnu. Miriam sýndi mér húsið og það er geeðveikt! Rosa kósý og mér líður strax vel hérna, allt svo "hómy". Mér finnst þau öll yndisleg og það er rosa gaman að vera með þeim. Þau eru rosa mörg svo það er líf og fjör á heimilinu :)


Ég og Seve nýkomnar heim. 

-bjarney

L'hotel


Íslensku skiptinemarnir mínus ég og kristín :)

Á hótelinu voru 420 skiptinemar frá öllum heiminum og mér fannst það rosa spennandi. Maður var í rosalega "minglandi" stuði og langaði að spjalla og kynnast öllum, því miður var ekki nægilegur tími til þess þar sem ég komum á föstudagskvöldið og fór á sunnudagsmorguninn. Ég náði þó að mingla aðeins og það var mjög fínt. Laugaradagurinn í stuttu máli var morgunmatur, námskeið, hádegismatur (pasta auðvitað), námskeið, kvöldmatur og svo var svona "welcome ceremony" um kvöldið. Kvöldið var mjög kósý og við Íslensku stelpurnar spjölluðum fullt :) Ég vaknaði klukkan 5 á sunnudagsmorguninn og við Lombardy (hérað í Ítalíu) skiptinemarnir lögðum af stað í tveim rútum klukkan 6. 

Welcome ceremony
-bjarney

Sunday, September 11, 2011

L'arrivo

Ferðalagið til Rómar var langt og erfitt en þrátt fyrir það mjög skemmtilegt. Við hittumst klukkan hálf 7 á föstudagsmorgun á flugvellinum í Keflavík og áttum flug klukkan korter í 8 til Dannmerkur. Þegar við komum í fríhöfnina var allt mjög fljótt að líða og við vorum komnar uppí flugvél áður en við vissum. Það var rosa gaman á fá að kynnast stelpunum aðeins og mér finnst við bara fínasti hópur. Við lentum í DK og sama sagan endurtók sig eiginlega bara nema flugvöllurinn mun ruglingslegri. Flugið til Rómar var jafnlangt og til DK en samt muun lengra. Það var svo mikil spenna í okkur öllum og við vorum svoldið "tens" á leiðinni. Allavega var það upplifunin mín af þessu seinna flugi! 

Þrátt fyrir tensið vorum við samt glaðar :)))

Við lentum og þar tóku sjálfboðaliðirnir á móti okkur ásamt frökkunum, tælendingunum, kínverjunum, mexíkönunum, skiptinemum frá Ekvador og eitthvað aðeins meira held ég? Það var rosalega heitt og við þurftum að bíða mjög lengi á flugvellinum eftir kínverjunum, sem voru í eitthvað aðeins seinna flugi en við. Við fórum uppí sveitta rútu þar sem allir voru gríðarlega þreittir og fórum á hótel í Róm. Við fórum beint að borða og fengum auðvitað ljúffengt ítalskt pasta !  Við fengum svo herbergi og ég var með Kristínu og Sigurrós, eins og í báðum flugunum okkar ! Hentum dótinu inn í herbergi og svo var sungið og dansað til 11. Fór í langþráða sturtu og svo bara snemma að sofa. Frábær fyrsta kvöld að baki í Róm, Ítalíu.  

Bouna notte Ísland :*
-bjarney